Fara í efni
Umræðan

Meirihlutinn féll, þreifingar hafnar

Nýliðar í oddvitasætum sterkustu framboðanna. Berglind Ósk Guðmundsdóttir Sjálfstæðisflokki og Óðinn Svan Óðinsson L-lista strax eftir að fyrstu tölur voru birtar í gærkvöldi. Myndir: Skapti Hallgrímsson

Sex manna meirihluti L-lista, Sjálfstæðisflokks og Miðflokks í bæjarstjórn Akureyrar féll í kosningunum í gær. L-listinn fékk þrjá menn fyrir fjórum árum en tvo núna, Sjálfstæðisflokkur hélt tveimur fulltrúum og Miðflokkur sínum eina. Sjö af átta framboðum fengu mann kjörinn, öll nema Viðreisn.

Samfylking bætti við sig manni í gær, fékk tvo bæjarfulltrúa, VG hélt sínum fulltrúa og Þórhallur Jónsson, fyrrverandi bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins sem stofnaði Akureyrarlistann í vetur, náði kjöri í gær. Flokkur fólksins fékk einn bæjarfulltrúa fyrir fjórum árum en bauð ekki fram í þetta skipti. Bæjarfulltrúar á Akureyri eru 11.

Sjálfstæðisflokkur og L-listinn fengu mest fylgi í gær, 19,4 og 19,3%.

Á kjörskrá á Akureyri voru 15.547 og kjörsókn 67,9%.

Ýmsar þreifingar um mögulegt meirihlutasamstarf fóru af stað strax í gærkvöldi skv. heimildum akureyri.net. „Það eru allir að reyna við alla,“ sagði einn hinna nýkjörnu bæjarfulltrúa í léttum dúr við blaðamann í nótt. Orðum viðkomandi fylgdi þó töluverð alvara; mikið var um símtöl en enginn fékkst til að tjá sig nánar að svo stöddu.

Stemningin hjá oddvitunum var góð rétt áður en fyrstu tölur voru birtar í Verkmenntaskólanum klukkan 11 í gærkvöldi. Frá vinstri: Sindri S. Kristjánsson, Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir, Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir, Sunna Hlín Jóhannesdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Berglind Ósk Guðmundsdóttir, Hlynur Jóhannsson og Þórhallur Jónsson.

Lokaniðurstaða kosninganna í gær varð þessi:

D - Listi Sjálfstæðisflokksins – 19,4% - 2 bæjarfulltrúar, Berglind Ósk Guðmundsdóttir og Heimir Örn Árnason.
2022: 17% og 2 bæjarfulltrúar.

L - listi - Bæjarlisti Akureyrar – 19,3% - 2 bæjarfulltrúar, Óðinn Svan Óðinsson og Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir.
2022: 19% og 3 bæjarfulltrúar.

S - listi Samfylkingarinnar – 16,7% - 2 bæjarfulltrúar, Sindri S. Kristjánsson og Hanna Dóra Markúsdóttir.
2022: 12% og 1 bæjarfulltrúi.

B - Listi Framsóknarflokksins – 15,1% - 2 bæjarfulltrúar, Sunna Hlín Jóhannesdóttir og Gunnar Már Gunnarsson.
2022: 17% og 2 bæjarfulltrúar.

M - listi Miðflokksins – 8,1% - 1 bæjarfulltrúi, Hlynur Jóhannsson.
2022: 8% og 1 bæjarfulltrúi.

V - listi Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs – 7,9% - 1 bæjarfulltrúi, Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir.
2022: 7% og 1 bæjarfulltrúi.

A - Akureyrarlistinn – 7,5% - 1 bæjarfulltrúi, Þórhallur Jónsson.
Nýtt framboð

C - Viðreisn – 5,9% - Fær ekki bæjarfulltrúa.
Nýtt framboð.

Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar, Sindri S. Kristjánsson og Hanna Dóra Markúsdóttir. Bæði eru nú kjörin aðalmenn í fyrsta skipti en Sindri var varabæjarfulltrúi á nýliðnu kjörtímabili.

Allir með

Linda Guðmundsdóttir og Kristján Sturluson skrifa
13. júní 2026 | kl. 10:00

Um mögulega 20 km styttingu Hringvegar á Norðurlandi vestra

Jónas B. Guðmundsson skrifar
11. júní 2026 | kl. 06:00

Aukið frelsi og sanngjarnt verð

Sigurjón Þórðarson skrifar
05. júní 2026 | kl. 08:00

Af trjám, sól, skjóli og yndi

Ingólfur Jóhannsson skrifar
29. maí 2026 | kl. 06:00

Að þora ekki að ræða við nágranna sína

Ragnar Sverrisson skrifar
26. maí 2026 | kl. 13:15

Að loknum kosningum - takk fyrir okkur!

Sindri S. Kristjánsson skrifar
23. maí 2026 | kl. 12:00