Mikið í húfi í leikjum Akureyringa í kvöld
Akureyrsk íþróttalið verða í eldlínunni á þrennum vígstöðvum í kvöld og alls staðar er mikið í húfi: karlalið Skautafélags Akureyrar, Víkingar, mæta Skautafélagi Reykjavíkur í öðrum úrslitaleiknum um Íslandsmeistaratitilinn í íshokkí, KA-konur eru í undanúrslitum bikarkeppninnar í blaki og síðast en ekki síst mætast Akureyrarfélögin Þór og KA í lokaumferð efstu deildar Íslandsmótsins í handbolta, Olísdeildinni, á heimavelli Þórs í Íþróttahöllinni.
_ _ _
Lokaumferð Olísdeildar karla í handknattleik er spiluð í kvöld og byrja allir leikirnir á sama tíma, kl. 19:30. Handboltaáhugafólk á Akureyri fær veislu í Höllinni þegar Þór og KA mætast.
- Olísdeild karla í handknattleik, lokaumferð
Íþróttahöllin á Akureyri kl. 19:30
Þór - KA - Útsending: Handboltapassinn í Sjónvarpi Símans
Áskriftarsjónvarp
Fyrri leik liðanna, sem fram fór í KA-heimilinu í nóvember, lauk með fjögurra marka sigri KA, 32-28.
Nánar verður fjallað um þennan mikilvæga Akureyrslag á akureyri.net seinna í dag.
_ _ _
SA Víkingar, karlalið Skautafélags Akureyrar, tekur á móti SR í öðrum leik liðanna í úrslitaeinvígi Toppdeildar karla. SR vann fyrstu viðureign liðanna fyrir sunnan á þriðjudagskvöld í framlengdum leik eftir ævintýralegan viðsnúning og framlengingu.
- Toppdeild karla í íshokkí
úrslitakeppni, leikur 2
Skautahöllin á Akureyri kl. 19:30
SA - SR - Útsending: icehockeyiceland.tv
Áskrift að rás eða stökum leikjum
_ _ _
Bikarmeistarar KA í blaki kvenna freista þess í kvöld að komast í úrslit keppninnar. KA vann Þrótt Fjarðabyggð 3-1 á útivelli í átta liða úrslitunum, en mótherjarnir í kvöld, sameiginlegt lið Þróttar í Reykjavík og Blakfélags Hafnarfjarðar, vann Völsung 3-1 á heimavelli.
KA er ríkjandi bikarmeistari, liðið vann HK 3-2 í úrslitaleiknum í fyrra.
- Kjörísbikar kvenna í blaki, undanúrslit
Digranes í Kópavogi kl. 19:30
Þróttur Reykjavík/Blakfélag Hafnarfjarðar - KA - Útsending: Rúv 2
Opin dagskrá
Þessi lið mættust fjórum sinnum í Unbroken-deildinni í vetur og vann KA allar viðureignirnar. KA vann tvær viðureignir 3-0 á Akureyri í september, 3-2 á útivelli í nóvember og 3-1 á útivelli í febrúar.
Hin viðureignin í undanúrslitum er á milli HK og Aftureldingar. Sigurliðin mætast í úrslitaleik í Digranesi laugardaginn 14. mars kl. 13.
Lífsgæðakjarni við Rangárvelli
Hljómburður í Matthíasarkirkju
Treystu þjóðinni. Þú ert með tromp á hendi
Hvernig fjölga Akureyringar sér?