Fara í efni
Umræðan

Markalaust maraþon og SR hirti bikarinn

Silvía Rán Björgvinsdóttir, fyrirliði SA, var sú eina úr Akureyrarliðinu sem skoraði í vítakeppninni. Hér er hún í fyrsta leik einvígisins, ásamt Ingu Rakel Aradóttur, Akureyringnum sem er fyrirliði SR og braut blað í sögu félagsins í kvöld þegar hún lyfti Íslandsbikarnum í fyrsta skipti í sögu kvennaliðsins. Mynd: Rakel Hinriksdóttir.

Maraþonleik liða Skautafélags Akureyrar og Skautafélags Reykjavíkur í úrslitum Toppdeildar kvenna í íshokkí lauk með sigri þeirra síðarnefndu eftir markalausan leik, markalausa framlengingu og vítakeppni, sem færði liðinu fyrsta Íslandsmeistaratitil kvenna í sögu félagsins. Báðir Íslandsmeistarabikararnir verða í Laugardalnum næsta árið.

Fyrir leikinn í dag var ljóst að SA varð að vinna leikinn til að tryggja sér oddaleik á heimavelli og eiga möguleika á að endurheimta Íslandsmeistaratitilinn sem hefur farið í Grafarvoginn í tvö síðustu skipti. SA vann fyrsta leik liðanna á Akureyri, 1-0, SR vann annan leikinn eftir vítakeppni á sínum heimavelli 2-1 og vann síðan þriðja leikinn á Akureyri á föstudag, 2-1. SR-ingar fengu því tækifæri til að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn með sigri á heimavelli í dag, og nýttu það tækifæri eftir maraþonleik þar sem mörkin vantaði.

Hvorugu liðinu tókst að skora, þrjár markalausar lotur, en SA-konur með fleiri marktilraunir eins og í fyrri leikjunum. Inn fór pökkurinn þó ekki, Shawlee Gaudreault í marki SA og Julianna Thomson í marki SR sáu til þess og voru öflugar að venju. Eftir þrjár markalausar lotur var gripið til framlengingar og þar er útileikmönnum fækkað til að opna leikinn, spilað þrjár á þarjár. 

Dauðafæri á báða bóga í framlengingunni

Áhugavert að sjá liðsskipan liðanna í upphafi framlengingar þar sem útileikmönnum er fækkað og spilað þrjár á þrjár. Markverðirnir eru erlendir, en allir útileikmenn beggja liða koma úr röðum Skautafélags Akureyrar. Amanda Ýr Bjarnadóttir, Magdalena Sulova og Silvía Rán Björgvinsdóttir hófu framlenginguna fyrir SA, en hjá SR voru það Berglind Rós Leifsdóttir, Ragnhildur Kjartansdóttir og Teresa Snorradóttir sem hófu leik, allar fyrrum leikmenn SA sem unnið hafa Íslandsmeistaratitilinn með Fjölni undanfarin tvö ár.

Eftir um eina og hálfa mínútu í framlengingunni komst Friðrika Magnúnsdóttir inn fyrir vörn SA, ein á móti markmanni, en Shawlee Gaudreault varði tvívegis. Skömmu seinna komst Sólrún Assa Arnardóttir í svipaða stöðu hinum megin, en Julianna Thomson varði frá henni. Kolbrún Björnsdóttir komst einnig í gott færi, en enn varði Julianna í marki SR. Leikurinn opnaðist vissulega, en það dugði þó ekki til að annað hvort liðið næði að skora.

Í vítakeppninni var það Friðrika Magnúsdóttir sem náði forystunni fyrir SR og Ragnhildur Kjartansdóttir kom þeim í 2-0 áður en Silvía Rán Björgvinsdóttir skoraði eina mark SA í vítakeppninni. Það var síðan Ragnhildur sem tryggði sigurinn með þriðja marki SR í vítakeppninni.

SR - SA 1-0 (0-0, 0-0, 0-0, 1-0)

Hér verða því ekki talin upp skoruð mörk og stoðsendingar, en nefna má að Shawlee Gaudreault varði 12 skot í opnum leik í marki SA og Julianna Thomson varði 28 skot í marki SR. Eins og áður sýna þær tölur eitthvað um sóknarþunga SA, en það hefur hins vegar ekkert breyst að það eru mörkin sem skipta máli þegar upp er staðið, ekki skotin.

Leikskýrslan

Liðin

Skautafélag Reykjavíkur er því Íslandsmeistari kvenna í íshokkí 2026, í fyrsta skipti í sögu kvennaliðs félagsins, og báðir stóru bikararnir komnir í Laugardalinn. SA-konur sitja eftir með sárt ennið eftir að hafa rúllað upp deildinni í vetur og tryggt sér deildarmeistaratitilinn. Úrslitakeppnin fór á annan veg en Akureyrarliðið óskaði sér, af ýmsum ástæðum, áföllum og öðru.

Það verður hins vegar forvitnilegt að sjá framvindu mála er varða hlutgengi Friðriku Magnúsdóttur, leikmanns SR, sem mögulega verður leyst úr fyrir dómstólum ÍSÍ, eins og áður hefur komið fram í fréttum akureyri.net. 

Reynir Jónína áfram ásamt dótturinni?

Jónína Margrét Guðjónsdóttir er líklega leikreyndasta hokkíkona landsins og þó víðar væri leitað. Hún náði aðeins að spila fyrsta leikinn í einvíginu um titilinn að þessu sinni. Þegar blaðamaður akureyri.net mætti henni í Skautahöllinni á Akureyri eftir fyrsta leikinn og bað hana láta sig vita síðar í einvíginu ef ske kynni að þetta væru hennar síðustu leikir með liðinu svaraði Jónína eitthvað á þessa leið: Það fer eftir því hvernig fer.

Jónína Margrét Guðbjartsdóttir (21) klár í dómarakastið í fyrsta leik SA og SR í einvíginu. Jónína, sem er nýlega orðin 45 ára, lék aðeins fyrsta leikinn í einvíginu að þessu sinni. Mynd: Rakel Hinriksdóttir.

Jónína hefur undanfarin tvö tímabil spilað ásamt dóttur sinni, Freyju Rán Sigurjónsdóttur, í meistaraflokki SA og sagði síðast þegar hún lyfti Íslandsbikarnum 2023, áður en Freyja hóf meistaraflokksferilinn, að sig langaði til að vinna titilinn með dóttur sinni. Saman unnu þær deildarmeistaratitilinn, en enn er bið eftir þeim stóra sem hefur verið fjarverandi frá Akureyri eftir þrjú síðustu einvígi. Kannski bíður Jónína með að leggja skautana á hilluna og reynir við titilinn á næsta ári, ásamt dótturinni. Þær náðu reyndar ekki að spila saman leik í úrslitakeppnini að þessu sinni, því Jónína spilaði aðeins fyrsta leikinn og Freyja Rán aðeins þriðja og fjórða.

Hvað er lífsgæðakjarni?

Hallgrímur Gíslason skrifar
30. mars 2026 | kl. 14:30

Gerum hlutina almennilega!

Óðinn Svan Óðinsson og Geir Kristinn Aðalsteinsson skrifa
30. mars 2026 | kl. 13:30

Tollabandalag ESB og mörk „sérlausna“

Erna Bjarnadóttir skrifar
30. mars 2026 | kl. 09:00

Hingað til náms. Hér til framtíðar.

Berglind Ósk Guðmundsdóttir og Þorsteinn Kristjánsson skrifa
30. mars 2026 | kl. 08:30

„Konur gerðu garðinn“ - Látum Kvenfélagsgarðinn blómstra á ný

Herdís Júlía Júlíusdóttir og Elvar Freyr Fossdal Sigfússon skrifa
29. mars 2026 | kl. 15:00

Komast málefni eldri borgara ekki á dagskrá?

Sunna Hlín Jóhannesdóttir og Gunnar Már Gunnarsson skrifa
29. mars 2026 | kl. 06:00