Fara í efni
Umræðan

María Gros með þrennu í fyrsta æfingaleiknum

María Ólafsdóttir Gros fyrir miðri mynd fagnar einu af sex mörkum liðsins í æfingaleik gegn Gefle. Mynd: Djurgårdens IF.

Akureyringurinn María Catharina Ólafsdóttir Gros, fyrrum leikmaður Þórs/KA, skoraði þrennu í fyrsta æfingaleik sínum með nýja félaginu, úrvalsdeildarliði Djurgårdens IF, þegar liðið mætti 1. deildar liði Gefle IF á útivelli í gær. Djurgårdens vann 6-1.

María kom liði sínu í 2-0 með sínu fyrsta marki sínu fyrir félagið. Hún fékk þá boltann inni í vítateig og skoraði örugglega. „María Gros kynnti sig í bláröndóttu treyjunni með góðri staðsetningu í vítateignum, átti gott skot og Djurgården fór inn í leikhléi með tveggja marga forystu og frábæra frammistöðu að baki,“ segir í umfjöllun um leikinn á vef félagsins. María skoraði sitt annað mark og kom liðinu í 4-0 á 48. mínútu, bauð þá „upp í dans“ þegar hún prjónaði sig í gegnum vörn Gefle og skoraði. Hún kláraði svo þrennuna með fimmta marki liðsins fjórum mínútum síðar.

Það var fremur kuldalegt í Gefle, fimm gráðu frost þegar leikurinn fór fram og segir í umfjöllun á vef Djurgårdens að hraðinn í leiknum hafi verið mikill, kannski að hluta til að leikmennirnir héldu á sér hita.

Alvaran hefst á laugardaginn

Fyrsti opinberi keppnisleikur Maríu með Djurgården verður á laugardaginn þegar liðið tekur á móti Brommapojkarna í bikarkeppninni. Sænska bikarkeppnin er eins og bland af Lengjubikarnum og Mjólkurbikarnum hér á landi, en fyrsti hluti bikarkeppninnar er spilaður í riðlum. Þar mæta María og liðsfélagar hennar Brommapojkarna og Alingsås IF í febrúar og IFK Norrköping í mars. Í millitíðinni spila þær æfingaleik við norska liðið Vålerenga. Þar eru tvær íslenskar knattspyrnukonur, Arna Eiríksdóttir, sem var lánsmaður hjá Þór/KA sumarið 2022 frá Val, og Sædís Rún Heiðarsdóttir.

Keppni í sænsku úrvalsdeildinni, Damallsvenskan, hefst í lok mars, en Djurgården mætir Växjö DFF í fyrsta leik sínum á heimavelli sunnudaginn 29. mars.

Á að höfða til kjósenda eða sérhagsmunahópa?

Þorkell Ásgeir Jóhannsson skrifar
06. febrúar 2026 | kl. 21:30

Hvernig verður Akureyri svæðisborg?

Sindri S. Kristjánsson skrifar
04. febrúar 2026 | kl. 06:00

Verður Hólaskóli lagður niður og Hólastaður seldur?

Jón Bjarnason skrifar
03. febrúar 2026 | kl. 06:00

Framboð sem byggir á trú á Akureyri

Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar
01. febrúar 2026 | kl. 11:30

„Akureyrar ákvæðið“ um lagningu raflína í þéttbýli

Karl Ingólfsson skrifar
26. janúar 2026 | kl. 16:30

Hreint ekki eins og atvinnuviðtal

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
26. janúar 2026 | kl. 13:00