Fara í efni
Umræðan

Úrslitaeinvígi kvenna í blaki hefst í kvöld

Meistarar meistaranna í upphafi tímabilsins, ríkjandi Íslandsmeistarar KA, sem fá nú tækifæri til að verja titilinn í úrslitaeinvígi gegn HK. Mynd af samfélagsmiðlum KA.

Kvennalið KA í blaki vann Völsung í oddaleik í undanúrslitum Íslandsmótsins í liðinni viku og mætir HK í úrslitaeinvíginu. HK vann deildarmeistaratitilinn og hefst einvígið því í Kópavoginum. Fyrsti leikur er í Digranesi í kvöld, en vinna þarf þrjá leiki til að vinna titilinn.

KA vann alla fjóra titlana í blaki kvenna á síðustu leiktíð, meistarar meistaranna, bikarmeistarar, deildarmeistarar og Íslandsmeistarar. Tímabilið hófst síðastliðið haust með því að KA vann titilinn meistarar meistaranna. Síðan þá eru tveir bikarar farnir í Kópavoginn, HK varð bæði bikar- og deildarmeistari á dögunum.

  • Úrslitakeppni Unbroken-deildar kvenna í blaki
    Digranes í Kópavogi kl. 18
    HK - KA
  • Útsending: Livey.events
    Áskrift að rás eða stökum leikjum

HK vann allar viðureignirnar við KA í deildinni í vetur, 3-0 og 3-1 á Akureyri í desember, og síðan 3-2 og 3-1 í lokaleikjum deildarinnar í byrjun mars. Þessi lið mættust einnig í úrslitum bikarkeppninnar, Kjörísbikarsins. HK vann þá viðureign 3-1.

Það verður því eflaust við ramman reip að draga hjá KA-liðinu enda er HK með sterkt lið og margar landsliðskonur í sínum röðum. En þegar komið er alla leið í úrslitaeinvígi um Íslandsmeistaratitilinn getur allt gerst.

Hvað ætlar Akureyri að verða þegar hún verður stór?

Sindri S. Kristjánsson skrifar
14. apríl 2026 | kl. 09:00

Fyrir enn betri Akureyrarbæ

Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar
14. apríl 2026 | kl. 08:00

Er (ó)mögulegt að byggja ódýrt?

Sunna Hlín Jóhannesdóttir skrifar
13. apríl 2026 | kl. 14:30

Börnin okkar eiga betra skilið en gjörunninn mat

Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir og Heiðbjört Ósk Ófeigsdóttir skrifa
13. apríl 2026 | kl. 09:00

Eldri borgarar – gullkista Norðurþings

Ágúst Sigurður Óskarsson og Svava Steingrímsdóttir skrifa
13. apríl 2026 | kl. 08:45

Menningin þarf meira en bara falleg orð

Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir skrifar
11. apríl 2026 | kl. 15:30