Fara í efni
Umræðan

Kosið til kirkjuþings

Eins og gefur að skilja eru fjölmiðlar fullir af efni um komandi sveitarstjórnarkosningar og af efni frá frambjóðendum. Þessa dagana stendur líka yfir kosning til Kirkjuþings en eðlilega fer minna fyrir umfjöllun um það í fjölmiðlum. Þó svo að ég hafi engin fyrirliggjandi gögn til að styðja það þá vil ég fullyrða að fæstir landsmenn hafi vitneskju um það að hér á landi starfar innan Þjóðkirkjunnar, Kirkjuþing. Hlutverk þingsins er margþætt en þau sem þar sitja fara í raun með æðsta valdið í málefnum kirkjunnar. Á kirkjuþingi eru mótaðar starfsreglur og stefna í málaflokkum sem varða kirkjuna. Kirkjuþing fer einnig með fjárstjórnarvald og lítur eftir starfi yfirstjórnar kirkjunnar. Kosið er rafrænt inn á kirkjan.is til þingsins til fjögurra ára í senn og standa kosningar yfir 7.-12. maí. Enn sem komið er hafa eingöngu aðal- og varamenn í sóknarnefndum kosningarétt en auk þess að þeir kjósi 17 almenna fulltrúa úr röðum sóknarbarna innan kirkjunnar, svonefndra leikmanna, þá kjósa vígðir þjónar innan kirkjunnar, prestar og djáknar, einnig 12 fulltrúa úr eigin röðum. Leikmenn í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum mynda sameiginlegt kjördæmi sem kýs 2 fulltrúa inn á þingið.

Margar af fámennari sóknum landsbyggðarinnar hafa um árabil barist við mikla erfðileika við að halda úti helgihaldi og viðhalda kirkjubyggingum, sem sumar hverjar eru friðaðar. Við þetta bætist að nú hin síðustu ár hefur farið að bera nokkuð á erfiðleikum við að fá presta til starfa í byggðalög fjarri höfuðborgarsvæðinu. Sú staðreynd að kirkjan hefur verið að selja mörg prestsetra sinna úti á landi hefur síst leitt til þess að auðvelda þá stöðu. Fráfarandi Kirkjuþing hefði þegar þurft að hafa brugðist betur við þessu sem og öðrum áskorunum sem sóknir í landinu glíma við. Brýnt er því að nýtt Kirkjuþing taki fljótt og vel á málunum.

Kirkjan er í sókn og þeim að fjölga sem sjá gildi í því að rækta sína trú og tilheyra kirkjunni. Nú er því sem fyrr áríðandi að inn á Kirkjuþing veljist fólk sem ber velferð kirkjunnar allrar fyrir brjósti. Mikilvægt að inn á þing, sem fer með æðsta vald í málefnum Kirkjunnar, rati einstaklingar með hæfileika, reynslu og þekkingu sem nýtist vel til slíkrar ábyrgðar. Ég tel afar brýnt að þau okkar sem búa hinar fámennari dreifðu byggðir eigi inni á Kirkjuþingi fulltrúa sem þekkja vel til og eru reiðubúnir til þess að gæta sérstaklega að hagsmunum landsbyggðarinnar. Sjálfur er ég í framboði enda hef ég mikinn áhuga á málefnum kirkjunnar og vill leggja mitt að mörkum til þess að bæta hag sókna og styrkja stoðir kirkjunnar. Inn á vefsvæði Kirkjunnar, kirkjan.is, er hægt að sjá upplýsingar um öll þau sem eru í framboði og hlekk á kynningarbréf frá flestum þeirra, einnig mitt. Ég hvet allt sóknarnefndarfólk á landinu til þátttöku í kosningum til Kirkjuþings og bið sóknarnefndarfólk í Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi að veita mér atkvæði sitt.

Aðalsteinn Már Þorsteinsson er kennari að mennt en starfar í dag sem skógar- og ferðaþjónustubóndi á Hjalla í Reykjadal

Indverskur matur og kvíðaspurningin

Inga Dagný Eydal skrifar
10. október 2026 | kl. 06:00

Réttlát kjördæmaskipan og ofríki stærðfræðinganna

Þóroddur Bjarnason skrifar
07. október 2026 | kl. 15:00

Mikilvægi endurhæfingar í hvetjandi og náttúrulegu umhverfi

Jón Hlöðver Áskelsson skrifar
06. október 2026 | kl. 13:00

Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað

Díana Jóhannsdóttir og Örlygur Hnefill Örlyggson skrifa
05. október 2026 | kl. 15:00

Fróðlegir fundir í kjördæminu

Sigurjón Þórðarson skrifar
05. október 2026 | kl. 07:15

Öflugt atvinnulíf þarf gott aðgengi að lóðum

Sunna Hlín Jóhannesdóttir skrifar
30. september 2026 | kl. 20:15