Fara í efni
Umræðan

Komnir og farnir hjá Þór fyrir tímabilið

Þrír sem komu heim í Þór fyrir leiktíðina. Frá vinstri: Atli Sigurjónsson frá KR, Bjarni Guðjón Brynjólfsson lánaður frá FH og Ágúst Eðvald Hlynsson sem lék með Vestra í fyrra. Myndir: Ármann Hinrik

Nýliðar Þórs í efstu deild karla í knattspyrnu hafa ekki gert miklar breytingar á leikmannahópi sínum fyrir átökin í sumar, miðað við sum önnur lið í deildinni. Fjórir af erlendu leikmönnum liðsins í fyrra eru horfnir á braut og munar þar mest um Ibrahima Balde, sem var einn albesti leikmaður liðsins í fyrra. Þá þurfti Orri Sigurjónsson að leggja skóna á hilluna.

Til að fylla í skörðin hafa Þórsarar fengið ýmsa sterka leikmenn og margir þeirra eru ekki að klæðast Þórstreyjunni í fyrsta sinn. Atli Sigurjónsson er kominn „heim“ eftir langa veru í KR og Ágúst Eðvald Hlynsson frá Vestra. Elvar Baldvinsson snýr aftur í Þór og sömu sögu má segja um Bjarna Guðjón Brynjólfsson og Birgi Ómar Hlynsson. Bjarni Guðjón er reyndar ennþá leikmaður FH en lánaður norður í sumar. Fyrir skömmu bættust þeir Isaac Atanga og Sebastian Hauglund við leikmannahópinn en þeir eru enn sem komið er óskrifað blað.

Ekki hefur verið lokað fyrir félagaskipti ennþá, þannig að liðin geta gert fleiri breytingar á leikmannahópum sínum.

Vefsíðan fotbolti.net hefur tekið saman heildarlista yfir leikmenn sem hafa komið og farið frá liðunum í deildinni frá síðasta tímabili:

KOMNIR Í ÞÓR

Ágúst Eðvald Hlynsson frá Vestra
Atli Sigurjónsson frá KR
Isaac Antanga frá Svíþjóð
Sebastian Haugland frá Noregi
Bjarni Guðjón Brynjólfsson frá FH á láni
Kristófer Máni Sigurðsson frá Hetti (lánaður til baka)
Elvar Baldvinsson frá Völsungi
Birgir Ómar Hlynsson frá ÍBV (var á láni)

FARNIR FRÁ ÞÓR

Ibrahima Balde í Vestra
Orri Sigurjónsson hættur
Clement Bayiha til Kanada
Rafael Victor í Grindavík
Juan Guardia í Völsung
Dagbjartur Búi Davíðsson í KA (var á láni)
Ýmir Már Geirsson, lánaður í Magna

SAMNINGSLAUSIR

Kári Jónsson
Rúnar Daði Vatnsdal Sveinsson

Akureyri tengd til framtíðar

Erik Figueras Torras skrifar
18. maí 2026 | kl. 06:00

Til hamingju með daginn!

Sindri S. Kristjánsson, Hanna Dóra Markúsdóttir og Sigrún Steinarsdóttir skrifa
16. maí 2026 | kl. 12:00

Tökum næstu skref

Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar
16. maí 2026 | kl. 09:45

Kveðja frá oddvita Viðreisnar

Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar
16. maí 2026 | kl. 09:30

Allt að gerast!

Þórhallur Jónsson skrifar
15. maí 2026 | kl. 19:45

Leikskólar fyrir öll: ekki bara þau sem hafa svigrúm

Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir og Stefán Oddur Hrafnsson skrifa
15. maí 2026 | kl. 17:30