Fara í efni
Umræðan

KA heima, Þór úti – hlé hjá konunum

Það verður rólegt hjá meistaraflokkunum í knattspyrnu fram eftir vikunni. Besta deild kvenna er komin í EM frí til 24. júlí, en karlalið Þórs og KA spila næst á föstudag. Sömuleiðis er æfingaleikur A-landsliðs kvenna á föstudag, síðasta verkefni fyrir EM. Í þeim hópi er Sandra María Jessen fulltrúi Akureyringa.

FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ - fótbolti

A-landslið kvenna kom saman í gær og hélt utan áleiðis til Serbíu í dag þar sem liðið mun leika æfingaleik gegn landsliði Serbíu á föstudag. Fyrsti leikur liðsins í úrslitakeppni EM verður svo miðvikudaginn 2. júlí.

  • Æfingaleikur A-landsliðs kvenna
    Sport Center FA of Serbia
    Serbía - Ísland

- - -

Þórsarar skriðu upp um nokkur sæti með sigri á Selfyssingum í 9. umferð Lengjudeildarinnar um liðna helgi enda er keppni um miðbik og í efri hluta deildarinnar mjög jöfn. Þremur stigum munar á Þórsurum í 4. sætinu og Grindvíkingum í 8. sæti. Síðan eru fimm stig frá 4. sætinu upp í toppsætið, sem er ÍR-inga um þessar mundir.

Þór sækir Fjölni heim í 10. umferð deildarinnar á föstudag. Fjölnir hefur átt í basli það sem af er sumeri og er í næstneðsta sæti deildarinnar með sex stig, jafnmörg stig og Selfyssingar sem eru í botnsætinu.

  • Lengjudeild karla í knattspyrnu
    Fjölnisvöllur kl. 18:30
    Fjölnir - Þór

- - -

KA seig niður í fallsæti Bestu deildar karla í  12. umferð deildarinnar þegar liðið beið ósigur fyrir Víkingum á heimavelli á sunnudag. KA situr í 11. sætinu með 12 stig úr 12 leikjum, en þó eru aðeins þrjú stig upp í eftri hluta deildarinnar, 6. sætið þar sem Fram er sem stendur með 15 stig. Fyrir neðan KA eru Skagamenn með níu stig.

KA tekur á móti Val í 13. umferðinni á föstudag. Valur vann stórsigur á KR á mánudagskvöld, 6-1, og eru Valsarar nú í 3. sæti deildarinnar með 21 stig.  KA og Valur mættust í 3. umferð deildarinnar undir lok apríl og höfðu Valsmenn betur, 3-1.

  • Besta deild karla í knattspyrnu
    Greifavöllur kl. 18:30
    KA - Valur

Fréttir af baggavélum og lömbum

Heiða Ingimarsdóttir skrifar
25. júní 2025 | kl. 06:00

Leiðrétting veiðigjalda – tækifæri, ekki árás

Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar
24. júní 2025 | kl. 16:00

Stöðvum áætlanir um sjókvíaeldi í Eyjafirði!

Harpa Barkardóttir skrifar
24. júní 2025 | kl. 06:00

Áhættusöm afturför í nafni framfara

Starfsfólk FÉLAK - Félagsmiðstöðva Akureyrar skrifar
23. júní 2025 | kl. 19:15

Á flandri í klandri

Jens Garðar Helgason skrifar
23. júní 2025 | kl. 17:00

Hrokinn á Svalbarðseyri

Adolf Ingi Erlingsson skrifar
23. júní 2025 | kl. 15:00