Hrokinn á Svalbarðseyri

Á dögunum skrifaði ég opið bréf til stjórnar Svalbarsstrandarhrepps varðandi sorphirðumál í Vaðlaheiði þar sem ég varpaði fram nokkrum spurningum. Þær spurningar voru ekki retórískar, það er spurningar sem ekki er reiknað með að sé svarað, heldur ætlaðist ég til að fá svör frá sveitarstjórninni.
En engin svör hafa borist, engin viðbrögð. Þetta lýsir dæmigerðum valdahroka kjörinna fulltrúa sem misskilja hlutverk sitt. Þeir þurfa að átta sig á því að þeim ber að þjóna kjósendum sínum og umbjóðendum, til dæmis með því að svara erindum sem þeim berast og fyrirspurnum. Vissulega er ég ekki kjósandi í hreppnum þar sem ég er með heimilisfesti í Reykjavík, en hinsvegar hef ég borgað nokkrar milljónir í fasteignagjöld á síðustu 20 árum og tel því að ég eigi skilið að fá svör, enda tek ég þátt í því að greiða fólki í sveitarstjórninni laun.
Því endurtek ég spurningar mínar til stjórnarinnar hér:
Á hvaða forsendum var ákveðið að fjarlægja sorpgámana?
Hver var kostnaðurinn við að reka þá?
Hvað greiða eigendur frístundahúsa í Vaðlaheiði samtals í fasteignagjöld á þessu ári?
Hvaða þjónustu fáum við fyrir þau?
Ég vona að sveitarstjórnin átti sig á hlutverki sínu og skyldum gagnvart þeim sem borga laun hennar og láti svo lítið að svara þessum spurningum, um leið og ég fer að sjálfsögðu fram á að sorphirðumálum verði komin í fyrra lag.
Adolf Ingi Erlingsson er eigandi frístundahúss í Vaðlaheiði


„Jákvæð viðbrögð“ um veiðigjaldið?

Komið að skuldadögum

Nýr vegvísir Evrópusambandsins um jafnrétti kynjanna

Friðum Eyjafjörð
