Fara í efni
Umræðan

Jón Steindór ráðinn sviðsstjóri hjá HA

Jón Steindór Árnason hefur verið ráðinn sviðsstjóri fjármála- og rekstrarsviðs Háskólans á Akureyri (HA) en í ágúst tekur nýtt skipurit skólans gildi. Fjármála- og rekstrarsvið er eitt fjögurra nýrra stoðsviða HA og undir það falla fjármál og bókhald, greiningar, fasteignaumsýsla og mötuneyti.

Í frétt á vefsíðu HA segir að Jón Steindór búi yfir umfangsmikilli reynslu af rekstri fyrirtækja, fjárfestingum og stefnumótun og hafi á undanförnum árum gegnt lykilhlutverkum á íslenskum fjármála- og atvinnumarkaði. Frá árinu 2021 hafi Jón Steindór starfað sem fjárfestingastjóri óskráðra hlutabréfa hjá KEA þar sem hann hafi komið að mati og eftirfylgni fjölbreyttra fjárfestinga. Þar áður var hann í átta ár framkvæmdastjóri fagfjárfestasjóða hjá Íslenskum verðbréfum og leiddi fjárfestingar í fyrirtækjum víða um land.

Í fréttinni segir ennfremur að Jón Steindór hafi einnig starfað sem sjálfstæður ráðgjafi og samhliða störfum sínum hafi hann setið í stjórn fjölda fyrirtækja og félaga, bæði sem formaður, varaformaður og stjórnarmaður. Hann er með B.Sc.-gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum á Akureyri og M.Sc.-gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands.

„Það er ánægjulegt að fá tækifæri til að taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu Háskólans á Akureyri. Sem fyrrverandi nemandi skólans þekki ég vel það mikilvæga hlutverk sem hann gegnir fyrir samfélagið og atvinnulífið. Fram undan eru spennandi verkefni og ég hlakka til að vinna með öflugu starfsfólki að því að byggja upp sterkt fjármála- og rekstrarsvið sem styður við metnaðarfulla starfsemi háskólans á sviði kennslu, rannsókna og samfélagsþjónustu,“ segir Jón Steindór í fréttinni á vef skólans.

Aukið frelsi og sanngjarnt verð

Sigurjón Þórðarson skrifar
05. júní 2026 | kl. 08:00

Af trjám, sól, skjóli og yndi

Ingólfur Jóhannsson skrifar
29. maí 2026 | kl. 06:00

Að þora ekki að ræða við nágranna sína

Ragnar Sverrisson skrifar
26. maí 2026 | kl. 13:15

Að loknum kosningum - takk fyrir okkur!

Sindri S. Kristjánsson skrifar
23. maí 2026 | kl. 12:00

Opið bréf til verðandi bæjarstjórnar

Erla Hrönn Unnsteinsdóttir skrifar
21. maí 2026 | kl. 10:10

Söguleg aftaka Hóla í Hjaltadal

Guðni Ágústsson skrifar
20. maí 2026 | kl. 21:00