Fara í efni
Umræðan

Fjölbreyttur fróðleikur í Vísindaskólanum

Sævar Helgi Bragason – Stjörnu Sævar – ásamt nokkrum nemendum Vísindaskólans fyrr í vikunni.

Það er ys og þys á göngum Háskólans á Akureyri þessa viku, frá mánudegi til föstudags, á meðan árlegur Vísindaskóli unga fólksins er haldinn. Þar eru nú 85 nemendur sem innsýn í ýmsar vísindagreinar; vísindafólkið er á aldrinum 11-13 ára og eru piltar í miklum meirihluta að þessu sinni. Vísindaskóli unga fólksins er nú haldinn í 12. skiptið og voru umsóknir fleiri en nokkru sinni áður.

Nemendur skólans koma alls staðar að af landinu en í skólanum er lögð áhersla á að koma með ný umfjöllunarefni á hverju vori til þess að nemendur geti komið ár eftir ár.

Að þessu sinni koma sérfræðingar Akureyrarbæjar sterkir inn í kennsluna og sjá meðal annars um kennslu í náttúruvísindum, endurvinnslu og samfélags- og heilsufræðum. Hinn þekkti Stjörnu Sævar, Sævar Helgi Bragason, og Sigríður Kristjánsdóttir náttúruvársérfræðingur Veðurstofu Íslands sjá um að undirbúa nemendur fyrir sólmyrkvann þann 12. ágúst næstkomandi.

Sigrún Óskarsdóttir, lengst til hægri, segir nemendum Vísindaskólans frá reynslu sinni af því að þurfa að vera í hjólastól frá unga aldri.

Jafnréttisstofa og Umboðsmaður barna fjalla um jafnrétti og réttindi barna. Þá má ekki gleyma Sigrúnu Óskarsdóttur sem segir frá persónulegri reynslu af því að þurfa að vera í hjólastól frá unga aldri eftir alvarlegt slys. Hún leyfir nemendum að prófa að fara um skólann í hjólastól til þess að átta sig á því hvernig það er þegar þröskuldur verður hindrun.

Á föstudag verður skólanum slitið við hátíðlega athöfn þar sem Stjörnu Sævar flytur hátíðaræðu, ung stúlka syngur og fulltrúar nemenda flytja ávarp. Rektor HA veitir nemendum viðurkenningarskjöl. Athöfnin er opin foreldrum og aðstandendum nemenda.

Umsjón með skólanum hafa þær Sigrún Stefánsdóttir, Dana Rán Jónsdóttir og Sigríður Bjarnadóttir. Fjöldi fyrirtækja og stofnana styrkja skólann fjárhagslega og gera það mögulegt að halda skólagjöldum í lágmarki, að þeirra sögn.

Freistað með okkar eigin peningum

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
07. ágúst 2026 | kl. 15:00

Hvað gæti ESB gert fyrir Norðurland?

Halldór Jörgen Olesen skrifar
06. ágúst 2026 | kl. 15:00

Ísland og ESB: Horft af brúnni

Þorvaldur Gylfason skrifar
04. ágúst 2026 | kl. 12:30

Hvernig lögum við vanstillt stjórnmál?

Gunnar Már Gunnarsson skrifar
29. júlí 2026 | kl. 11:30

Landbúnaður, fæðuöryggi, byggðamál og ESB

Hólmgeir Karlsson skrifar
27. júlí 2026 | kl. 06:00

Landlægur misskilningur um þjóðaratkvæðagreiðslu

Hjörtur Hjartarson skrifar
23. júlí 2026 | kl. 13:36