Fara í efni
Umræðan

ÍBV reyndist númeri of stórt fyrir KA/Þór

Eyjakonan Sandra Erlingsdóttir fer hér framhjá varnarmönnum KA/Þórs í leik liðanna í KA-heimilinu í haust. Ekki gekk betur að stöðva Söndru í leiknum í dag. Mynd: handbolti.is.

KA/Þór fékk ÍBV í heimsókn í efstu deild kvenna í handknattleik í dag, þar sem gestirnir fóru með öruggan sigur af hólmi, 32:22. ÍBV hefur ásamt Val verið í sérflokki í deildinni í vetur og sigur liðsins var aldrei í hættu.

Leikurinn var samt nokkuð jafn fram í miðjan fyrri hálfleik en þá tóku Eyjastúlkur öll völd og höfðu sjö marka forskot í leikhléi, 18:11. Heimastúlkur náðu ekkert að ógna því forskoti eftir hlé og í lokin munaði 10 mörkum, 32:22.

Hjá ÍBV var landsliðskonan Sandra Erlingsdóttir markahæst með 8 mörk úr jafnmörgum skotum, auk þess sem KA/Þór gekk illa að eiga við Eyjavörnina. Bak við hana vörðu Eyjamarkverðirnir síðan 12 skot en þær þrjár sem spreyttu sig í marki heimaliðsins vörðu ekki nema 5 skot samanlagt.

KA/Þór situr því ennþá í 6. sæti og núna eru 4 stig upp í næstu lið fyrir ofan. Næsti leikur hjá KA/Þór er gegn botnliði Selfyssinga á útivelli um næstu helgi.

Mörk KA/Þórs: Susanne Denise Pettersen 5, Tinna Valgerður Gísladóttir 4 (4 víti), Trude Blestrud Hakonsen 4, Anna Þyrí Halldórsdóttir 3, Sólveig Lára Kristjánsdóttir 3, Anna Petrovics 2, Lydía Gunnþórsdóttir 1 (1 víti).

Varin skot: Ástrós Anna Bender 2, Bernadett Leiner 2, Selma Sigurðardóttir 1.

Mörk ÍBV: Sandra Erlingsdóttir 8 (1 víti), Alexandra Ósk Viktorsdóttir 5, Ásdís Halla Hjarðar 5, Birna Berg Haraldsdóttir 5, Birna María Unnarsdóttir 3, Birna Dögg Egilsdóttir 2, Ásta Björt Júlíusdóttir 2, Amelía Dís Einarsdóttir 1, Kristrún Ósk Hlynsdóttir 1.

Varin skot: Amalia Frøland 10 (1 víti), Ólöf Maren Bjarnadóttir 2 (1 víti).

Öll tölfræði leiksins hjá HBStatz

Staðan í Olísdeild kvenna

Öryggi í fyrirrúmi - sameinumst öll um nýja Slökkvistöð á Akureyri

Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir skrifar
15. apríl 2026 | kl. 17:00

Er Loftbrúin næst?

Sverre Jakobsson skrifar
15. apríl 2026 | kl. 16:30

Gleymda forvörnin

Stefán Oddur Hrafnsson skrifar
15. apríl 2026 | kl. 12:00

Áfram menning og listir, ekki bara á tyllidögum!

María Pálsdóttir skrifar
15. apríl 2026 | kl. 11:11

Siglingahús Nökkva – klárum verkefnið!

Tryggvi J. Heimisson skrifar
15. apríl 2026 | kl. 09:30

Gamall maður fer í framboð

Ragnar Sverrisson skrifar
15. apríl 2026 | kl. 08:45