Fara í efni
Umræðan

Emma Karólína og Axel verðlaunuð hjá Þór

Bestu leikmenn körfuknattleiksliða Þórs: Emma Karólína Snæbjarnardóttir og Axel Arnarsson ásamt formanni deildarinnar, Guðjóni Andra Gylfasyni.

Körfuknattleiksdeild Þórs hélt lokahóf sitt á laugardagskvöldið þar sem meðal annars voru veitt verðlaun og viðurkenningar. Emma Karólína Snæbjarnardóttir og Axel Arnarsson voru valin bestu leikmenn Þórsliðanna á tímabilinu.

Kvennalið Þórs endaði deildarkeppnina í 2. sæti deildarinnar, vann 15 leiki af 18. Aþena vann deildina og fór beint upp í Bónusdeildina, efstu deild Íslandsmótsins, en Hamar/Þór, Þór, Fjölnir og Selfoss fóru í umspil um annað laust sæti. Hamar/Þór endaði í næstneðsta sæti Bónusdeildarinnar, en hin þrjú í 2.-4. sæti 1. deildar. Þór mætti Fjölni í undanúrslitum umspilsins, en hafði ekki erindi sem erfiði, Fjölnir vann einvígið 3-0 og keppnistímabili Þórs þar með lokið. Einvígi Hamars/Þórs og Fjölnis um sæti í efstu deild hafið, Hamar/Þór vann fyrsta leikinn.

  • Besti leikmaður: Emma Karólína Snæbjarnardóttir
  • Efnilegasti leikmaður: Sigurlaug Eva Jónasdóttir
  • Besti liðsfélaginn: Emilie Ravn

Emma Karólína var jafnframt valin leikmaður ársins í 1. deild kvenna, eins og áður hefur komið fram í fréttum.

Emma Karólína Snæbjarnardóttir, besti leikmaður kvennaliðs Þórs, ásamt formanni deildarinnar, Guðjóni Andra Gylfasyni.

Sigurlaug Eva Jónasdóttir, sem kom til félagsins frá Keflavík fyrir tímabilið, var valin efnilegust í kvennaliði Þórs.

Hin danska Emilie Ravn var valin besti liðsfélaginn í kvennaliði Þórs.

Karlaliðið í brasi

Karlalið Þórs endaði í hörkubaráttu við botn 1. deildarinnar, en náði að bjarga sér þó ekki hafi mátt miklu muna. Þórsliðið vann fjóra leiki af 22, en þrjú lið voru jöfn í þremur neðstu sætunum, öll með fjóra sigra. Þórsarar enduðu í 10. sætinu, efstir af þessum þremur liðum vegna árangurs í innbyrðis leikjum gegn þeim.

  • Besti leikmaður: Axel Arnarsson
  • Efnilegasti leikmaður: Pétur Cariglia
  • Besti liðsfélaginn: Týr Óskar Pratiksson
  • Viðurkenning fyrir 100 leiki í meistaraflokki: Páll Nóel Hjálmarsson og Smári Jónsson.

Axel Arnarsson, besti leikmaður karlaliðs Þórs, ásamt formanni deildarinnar.

Pétur Cariglia í leik með Þórsliðinu í vetur. Hann var valinn efnilegasti leikmaður meistaraflokks karla. Mynd: Guðjón Andri Gylfason.

Týr Óskar Pratiksson var valinn besti liðsfélaginn í karlaliði Þórs.

Smári Jónsson rauf 100 leikja múrinn með meistaraflokki á tímabilinu.

Páll Nóel Hjálmarsson rauf 100 leikja múrinn með meistaraflokki á tímabilinu.

Körfuknattleiksdeildin verðlaunaði einnig nokkra sjálfboðaliða úr hópi deildarinnar; Björn Halldór Sveinsson, Guðmund Ævar Oddsson, Helga Heiðar Jóhannesson, Kára Þorleifsson, Snæbjörn Kristjánsson og Stefán Smára.

„Hvenær hættiði að tala um þessa sundlaug?“

Stefán Oddur Hrafnsson og Dýrleif Skjóldal skrifa
11. maí 2026 | kl. 06:00

Stefnum hátt

Ragnar Sverrisson skrifar
11. maí 2026 | kl. 06:00

Sumarið sem kom á óvart

Kristín Helga Schiöth skrifar
10. maí 2026 | kl. 17:30

Mannréttindi á okkar dögum

Sigrún Steinarsdóttir skrifar
10. maí 2026 | kl. 11:00

Við ætlum að vinna keppnina um unga fólkið

Óðinn Svan Óðinsson skrifar
10. maí 2026 | kl. 06:00

Hvert stefnir menningin?

Elsa María Guðmundsdóttir skrifar
09. maí 2026 | kl. 10:30