Hvar eru kosningakaffi og kosningavökur?
Enginn þarf að svelta á kjördag nema sá sem kýs að fara þannig í gegnum daginn. Eins og hefð er fyrir bjóða öll átta framboðin í bæjarstjórnarkosningunum upp á kosningakaffi og í kvöld verða átta kosningavökur þar sem frambjóðendur, stuðningsmenn og hugsanlega fleiri fylgjast grannt með fyrstu tölum og síðan hvernig framvindan verður.
Hér má sjá lista yfir það hvar framboðin verða niðurkomin í dag og í kvöld.
A – Akureyrarlistinn
Oddviti: Þórhallur Jónsson
- Kosningakaffi – Hvalaskoðunarhús Eldingar við Hof – 14:30 til 17:00
- Kosningavaka – Sami staður frá kl. 21:00
B – Framsókn
Oddviti: Sunna Hlín Jóhannesdóttir
- Kosningakaffi – Salur Rauða krossins, Viðjulundi 2 – 13:30 til 16:00
- Kosningavaka – Leynibar í göngugötunni frá kl. 21:00
C – Viðreisn
Oddviti: Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir
- Kosningakaffi – Salur Einingar-Iðju, Alþýðuhúsinu við Skipagötu – 13:30 til 15:30
- Kosningapartý – Centrum í göngugötunni frá kl. 19:00
D – Sjálfstæðisflokkurinn
Oddviti: Berglind Ósk Guðmundsdóttir
- Kosningakaffi – LÓN, Hótel Akureyri – 13:00 til 16:00
- Kosningavaka – Kosningaskrifstofan, Furuvöllum 5, frá kl. 21:30 til 01:00
L – L-listinn
Oddviti: Óðinn Svan Óðinsson
- Kosningakaffi – Terían á neðstu hæð Hótels Kea – 15:00 til 17:00
- Kosningavaka – Græni hatturinn frá kl. 21.00
M – Miðflokkurinn
Oddviti: Hlynur Jóhannsson
- Kosningakaffi – Lionssalurinn, Alþýðuhúsinu við Skipagötu – 14:00 til 16:00
- Kosningavaka – Sami staður frá kl. 21:00
S – Samfylkingin
Oddviti: Sindri S. Kristjánsson
- Kosningakaffi – Leynibar í göngugötunni – 14:00 til 17:00
- Kosningavaka – Sunnuhlíð frá kl. 22:00
V – Vinstri hreyfingin - grænt framboð
Oddviti: Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir
- Kosningakaffi – Brekkugata 7 – 14:00 til 18:00
- Kosningavaka – Sami staður frá kl. 21:00
Tökum næstu skref
Kveðja frá oddvita Viðreisnar
Allt að gerast!
Leikskólar fyrir öll: ekki bara þau sem hafa svigrúm