Fara í efni
Umræðan

Hugmyndir í Hofsbót kynntar Akureyrarbæ

Hugmyndir að byggingum í Hofsbót 1-3. Húsið næst á myndinni stendur þar sem leigubílastöð BSO stendur nú. Myndirnar með fréttinni eru skjáskot úr greinargerð Zeppelin arkitekta.

Undirbúningur að byggingarframkvæmdum á lóðunum Hofsbót 1-3 er að taka á sig mynd. Í gær tók skipulagsráð Akureyrarbæjar fyrir erindi frá Zeppelin arkitektum ehf. fyrir hönd SS Byggis þar sem óskað var eftir mati ráðsins á tillögu að uppbyggingu á lóðunum. Hugmyndirnar, sem kynntar voru fulltrúum Akureyrarbæjar í desember og ræddar í skipulagsráði í gær, fela í sér smávægilegar breytingar á deiliskipulagi frá því sem gert var ráð fyrir í úthlutunar- og útboðsskilmálum.

Meirihluti skipulagsráðs samþykkti að fela skipulagsfulltrúa að hefja vinnu með lóðarhafa að breytingu á deiliskipulagi samhliða nánari hönnun á útfærslu mannvirkja og nánasta umhverfi. 

Gert er ráð fyrir sólríku og skjólgóðu torgi, sem opið yrði öllum almenningi og án efa kærkominn griðastaður fyrir íbúa og gesti miðbæjarins, eins og segir í greinargerðinni.  

  • Helstu breytingar sem í tillögunni felast, samkvæmt greinargerð sem fylgdi erindinu til skipulagsráðs:

Byggingarmagn:

  • Hluti byggingarmagns ofanjarðar er fluttur til, en samanlagt byggingarmagn er þó óbreytt
  • Byggingamagn í kjallara er aukið verulega til að koma fyrir fleiri bílastæðum og er þeim fjölgað um 50%, úr 60 í 90.

Útlit og hönnun

  • Horft er til mjúkra lína skútanna sem áður lágu á Pollinum, segla þeirra og óreglulegrar stefnu.
  • Útveggir jarðhæðar eru með öldumynstri og gluggar bogalaga og minna á öldur hafsins.
  • Efri hæðir skaga að öllu leyti fram yfir jarðhæðir og „sigla“ á bogalöguðum gluggum jarðhæðar.
  • Ávalar línur útkragandi efri hæða minna um sumt á menningarhúsið Hof, en í tillögugerðinni var meira horft til ávalra lína skútanna sem  áður lágu á pollinum.
  • Nokkur breyting er á lagi jarðhæðar. Helsta breytingin er að fallið er frá þakgarði á 2. hæð Hofsbótar 1 og hann færður niður og breytt í sólríkt og skjólgott torg, opið öllum almenningi og án efa kærkominn griðastaður fyrir íbúa og gesti miðbæjarins.
  • Gert er ráð fyrir atvinnurekstri á jarðhæð, en íbúðum á efri hæðum nema í austurhluta nyrstu byggingarinnar. Þar þykir ekki heppilegt að hafa íbúðir vegna nálægðar við fjölfarin gatnamót Glerárgötu og Strandgötu og þess í stað reiknað með skrifstofum í þeim hluta.
  • Jarðhæð Hofsbótar 3 er skipt upp í tvennt til að létta á byggingarmassanum og opna útsýni út á Pollinn
  • Gert er ráð fyrir að íbúðir hvers húss hverfist um einn stigakjarna.

Hugmynd að útliti fyrirhugaðra bygginga séð frá menningarhúsinu Hofi.

Við hönnun á byggingunum er horft til mjúkra lína skútanna sem áður lágu á Pollinum, segla þeirra og óreglulegrar stefnu.

Er (ó)mögulegt að byggja ódýrt?

Sunna Hlín Jóhannesdóttir skrifar
13. apríl 2026 | kl. 14:30

Börnin okkar eiga betra skilið en gjörunninn mat

Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir og Heiðbjört Ósk Ófeigsdóttir skrifa
13. apríl 2026 | kl. 09:00

Eldri borgarar – gullkista Norðurþings

Ágúst Sigurður Óskarsson og Svava Steingrímsdóttir skrifa
13. apríl 2026 | kl. 08:45

Menningin þarf meira en bara falleg orð

Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir skrifar
11. apríl 2026 | kl. 15:30

Mannúðarfélög

Sigrún Steinarsdóttir skrifar
10. apríl 2026 | kl. 10:30

Af hundum og köttum - Stuðningur við Kisukot og hundasvæði

Harpa Guðbrandsdóttir skrifar
09. apríl 2026 | kl. 16:35