Heimavöllurinn reynist KA áfram drjúgur
KA vann sinn sjöunda heimasigur í níu leikjum í efstu deild karla í handknattleik þegar liðið hafði betur gegn Fram í dag. Eftir jafnan fyrri hálfleik sigldi KA fram úr gestunum í seinni hálfleik og vann öruggan fimm marka sigur, 32:27.
Framarar stóðu í KA fram að hléi og munurinn í hálfleik var eitt mark, 16:15, eftir að Ágúst Elí Björgvinsson markvörður varði vítakast Framara í lok hálfleiksins. Ágúst hélt áfram að verja frábærlega eftir hlé og markvarsla hans lagði grunninn að því að KA náði að hrista Framara af sér. Fljótlega í seinni hálfleik dró í sundur með liðunum og sigur KA var aldrei í hættu.
Ágúst Elí varði 17 skot í markinu, um 40% markvarsla, og Bjarni Ófeigur Valdimarsson var markahæstur eins og oft áður. Hann skoraði 8 mörk, auk þess að eiga fjölmargar stoðsendingar. Sigurinn var afar mikilvægur fyrir KA og er liðið nú einungis fjórum stigum frá Val, sem trónir á toppi deildarinnar.
Næsti leikur KA verður einmitt útileikur gegn Val næstkomandi laugardag.
Mörk KA: Bjarni Ófeigur Valdimarsson 8, Morten Linder 5, Logi Gautason 5, Einar Birgir Stefánsson 4, Jens Bragi Bergþórsson 3, Magnús Dagur Jónatansson 3, Arnór Ísak Haddsson 1, Daði Jónsson 1, Giorgi Dikhaminjia 1, Einar Rafn Eiðsson 1 (1 víti).
Varin skot: Ágúst Elí Björgvinsson 17 (1 víti), Bruno Bernat 1 (1 víti).
Mörk Fram: Dánjal Ragnarsson 8 ( 3 víti), Viktor Sigurðsson 5, Theodór Sigurðsson 3, Erlendur Guðmundsson 2, Kjartan Þór Júlíusson 2, Arnar Snær Magnússon 2, Max Emil Stenlund 2, Þorsteinn Gauti Hjálmarsson 1, Rúnar Kárason 1, Dagur Fannar Möller 1.
Varin skot: Arnór Máni Daðason 10, Garpur Druzin Gylfason 2.
Öll tölfræði leiksins hjá HBStatz

Bjarni Ófeigur Valdimarsson kann vel við sig gegn Fram. Hann skoraði 12 mörk í fyrri leik liðanna í október og 8 mörk í dag, auk þess að skora 6 mörk í bikarleik liðanna í desember. Mynd: Hafliði Breiðfjörð
Hvernig verður Akureyri svæðisborg?
Verður Hólaskóli lagður niður og Hólastaður seldur?
Framboð sem byggir á trú á Akureyri
„Akureyrar ákvæðið“ um lagningu raflína í þéttbýli