Fara í efni
Umræðan

Handbolti: KA vann FH með yfirburðum

Ágúst Elí Björgvinsson átti stórbrotinn leik í marki KA gegn FH í kvöld. Hann varði 21 skot af 44 sem komu á markið skv. tölfræði HBStatz; afar sjaldgæft er að markvörður sé með 44% markvörslu í leik. Mynd: Skapti Hallgrímsson

KA gerði góða ferð til Hafnarfjarðar í kvöld í 8. umferð efstu deildar karla í handknattleik, Olísdeildinni, og lagði heimamenn í FH örugglega að velli, 39:33. KA var með forystuna allan tímann og komst með sigrinum upp í 2. sæti deildarinnar. Liðið hefur nú 12 stig, eftir sex sigurleiki og tvo tapleiki.

FH-ingar hafa líka farið vel af stað í deildinni og höfðu aðeins tapað einum leik í fyrstu sjö umferðunum. En það er óhætt að segja að þeir sáu aldrei til sólar í þessari viðureign. Eftir 10 mínútna leik var KA komið með fimm marka forystu, 8:3, og tvö af þessum þremur mörkum heimamanna komu úr víti. Staðan í leikhléi var 20:17 fyrir KA og Dagur Árni Heimisson var kominn með 8 mörk.

KA-menn létu síðan kné fylgja kviði eftir hlé og FH-ingar áttu engin svör. Ágúst Elí Björgvinsson var í miklu stuði í markinu, Arnór Ísak Haddsson kom inn á og skoraði fimm mörk og Bjarni Ófeigur Valdimarsson fann líka fjölina sína og deildi að auki út stoðsendingum. Munurinn var kominn upp í sjö mörk um miðjan seinni hálfleikinn. Mestur varð munurinn níu mörk, 35:26, en lokatölur urðu 39:33.

Dagur Árni Heimisson gerði 12 mörk í Hafnarfirði í kvöld. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Frábær leikur hjá KA, sem kemur í kjölfar annars frábærs leik gegn Aftureldingu fyrir nokkrum dögum. Eins og áður sagði átti Ágúst Elí stórbrotinn leik í markinu og lokaði því á löngum köflum. Hann varði alls 21 skot, þar af tvö vítaskot frá fyrrum liðsfélaga sínum, Einari Rafni Eiðssyni, og var með 44% markvörslu. Dagur Árni endaði með 12 mörk og Bjarni Ófeigur var með 7 mörk og jafnmargar stoðsendingar.

Það verður síðan sannkallaður toppslagur í næstu umferð þegar KA tekur á móti Haukum á laugardaginn kl. 18:30 en Haukar hafa unnið fyrstu 8 leiki sína í deildinni og eru á toppnum með 16 stig. KA og Valur koma þar á eftir með 12.

Mörk KA: Dagur Árni Heimisson 12 (4 víti), Bjarni Ófeigur Valdimarsson 7, Arnór Ísak Haddsson 5, Dagur Gautason 4, Einar Birgir Stefánsson 4, Jens Bragi Bergþórsson 3, Andri Freyr Friðriksson 1, Daði Jónsson 1, Morten Linder 1, Patrekur Stefánsson 1.

Varin skot: Ágúst Elí Björgvinsson 21 (2 víti) (44%), Bruno Bernat 1.

Mörk FH: Ómar Darri Sigurgeirsson 6, Brynjar Narfi Arndal 5, Jón Bjarni Ólafsson 5, Leonharð Þorgeir Harðarson 5, Ágúst Guðmundsson 4, Einar Rafn Eiðsson 4 (4 víti), Jakob Martin Ásgeirsson 2, Símon Michael Guðjónsson 2.

Varin skot: Jón Þórarinn Þorsteinsson 4, Ólafur Rafn Gíslason 4.

Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm

Björn Snæbjörnsson skrifar
27. október 2026 | kl. 10:00

Brú yfir byggðaföllin eða mjaltavél Icelandair?

Þóroddur Bjarnason skrifar
26. október 2026 | kl. 17:30

Loftbrúin má ekki missa flugið

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
23. október 2026 | kl. 17:15

Hvað gerist í síðari hálfleik? 

Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar
19. október 2026 | kl. 16:30

Indverskur matur og kvíðaspurningin

Inga Dagný Eydal skrifar
10. október 2026 | kl. 06:00

Réttlát kjördæmaskipan og ofríki stærðfræðinganna

Þóroddur Bjarnason skrifar
07. október 2026 | kl. 15:00