Fara í efni
Umræðan

Hallgrímur og Hans valdir í landsliðið

Hallgrímur Mar Steingrímsson og Hans Viktor Guðmundsson úr KA eru báðir í íslenska landsliðinu í knattspyrnu sem mætir Mexíkó í vináttulandsleik síðar í mánuðinum. Myndir: Facebook-síða KA.

Þeir Hallgrímur Mar Steingrímsson og Hans Viktor Guðmundsson úr KA eru báðir í landsliðshóp Íslands í knattspyrnu sem mætir Mexíkó ytra í vináttulandsleik þann 26. febrúar. Tuttugu leikmenn eru í hópnum og leika þeir allir með íslenskum liðum nema einn.

Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari tilkynnti landsliðshópinn í dag en vegna þess að leikurinn fer fram utan hefðbundinna landsleikjaglugga eru leikmenn úr flestum deildum Evrópu ekki til taks. Hvorki Hallgrímur Mar né Hans Viktor hafa leikið A-landsleik en Hans á að baki 12 leiki með U-21 landsliðinu árin 2017-2018.

Ísland og Mexíkó hafa fimm sinnum áður mæst í vináttulandsleik og enn hefur Ísland ekki náð að sigra og aðeins tvívegis náð jafntefli. Mexíkó er í 16. sæti heimslistans í knattspyrnu og undirbýr sig nú fyrir lokakeppni HM í sumar en Ísland er í 74. sæti. 

Daníel Hafsteinsson, sem er uppalinn KA-maður en leikur nú með Víkingi, var einnig valinn í landsliðshópinn. Leikurinn fer fram í Queretaro í Mexíkó og hefst kl. 2 að íslenskum tíma aðfaranótt 26. febrúar.

Opið bréf til íslenskra fjölmiðla - Hver eru markmið ykkar?

Daníel Andri Eggertsson skrifar
12. mars 2026 | kl. 13:30

„Flest mulig – lengst mulig“ á Akureyri

Þóroddur Ingvarsson skrifar
12. mars 2026 | kl. 07:00

Lífsgæðakjarni við Rangárvelli

Þórhallur Jónsson skrifar
11. mars 2026 | kl. 16:45

Hljómburður í Matthíasarkirkju

Gísli Sigurgeirsson skrifar
10. mars 2026 | kl. 18:00

Treystu þjóðinni. Þú ert með tromp á hendi

Stjórn Stjórnarskrárfélagsins skrifar
09. mars 2026 | kl. 15:45

Hvernig fjölga Akureyringar sér?

Þóroddur Bjarnason skrifar
08. mars 2026 | kl. 11:00