Fara í efni
Umræðan

Golf: Þrettán frá GA á Íslandsmótinu

Veigar Heiðarsson úr GA eftir að hann tryggði sér þriðja sæti á Íslandsmótinu í golfi á Hvaleyrarvelli í Hafnarfirði á síðasta ári með frábærri spilamennsku á lokadeginum. Mynd Guðríður Sveinsdóttir

Þrettán keppendur frá Golfklúbbi Akureyrar (GA) eru meðal 132 bestu kylfinga landsins á Íslandsmótinu í höggleik sem hefst í dag. Leikið er á Korpúlfsstaðavelli Golfklúbbs Reykjavíkur og stendur mótið yfir fram á sunnudag.

Í kvennaflokki á GA þrjá fulltrúa af 40 keppendum. Andrea Ýr Ásmundsdóttir er þeirra reynslumest og er í 10. sæti í forgjafarröðinni hjá konunum. Samkvæmt áliti sérfræðinga er talið líklegast að Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Golfklúbbnum Keili og Ragnhildur Kristinsdóttir úr Golfklúbbi Reykjavíkur muni berjast um Íslandsmeistaratitilinn.

Keppendur GA í kvennaflokki:

  • Andrea Ýr Ásmundsdóttir
  • Björk Hannesdóttir
  • Lilja Maren Jónsdóttir

Í karlaflokki eru 10 keppendur af 92 frá GA. Fyrirfram má búast við að Veigar Heiðarsson eigi mesta möguleika af þeim til að blanda sér í toppbaráttuna en hann náði mjög góðum árangri á Íslandsmótinu í fyrra og hafnaði þá í 3. sæti. Þrátt fyrir ungan aldur er Veigar einna reynslumestur GA-strákanna því flestir hinna í liðinu eru ennþá yngri! Veigar er ellefti í forgjafarröðinni í karlaflokknum en Íslandsmeistarinn frá í fyrra, Dagbjartur Sigurbrandsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur, er með lægstu forgjöfina. Hann er í hópi þeirra sem talið er að muni helst berjast um titilinn í ár, ásamt Guðmundi Ágústi Kristjánssyni úr Golfklúbbi Reykjavíkur og Aroni Snæ Júlíussyni úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar.

Keppendur GA í karlaflokki:

  • Arnar Freyr Viðarsson
  • Ágúst Már Þorvaldsson
  • Barri Björgvinsson
  • Hafsteinn Thor Guðmundsson
  • Mikael Máni Sigurðsson
  • Maron Björgvinsson
  • Óskar Páll Valsson
  • Patrekur Máni Ævarsson
  • Valur Snær Guðmundsson
  • Veigar Heiðarsson

Eftir fyrstu tvo keppnisdagana verður skorið niður í keppendahópnum í báðum flokkum um helming og þeir kylfingar sem komast gegnum niðurskurðinn halda áfram keppni á laugardag og sunnudag.

Hægt er að fylgjast með gangi mála á Íslandsmótinu á vefsíðu Golfsambands Íslands og samfélagsmiðlum sambandsins, auk þess sem RUV sýnir beint frá mótinu á föstudag, laugardag og sunnudag.

Ísland og ESB: Horft af brúnni

Þorvaldur Gylfason skrifar
04. ágúst 2026 | kl. 12:30

Hvernig lögum við vanstillt stjórnmál?

Gunnar Már Gunnarsson skrifar
29. júlí 2026 | kl. 11:30

Landbúnaður, fæðuöryggi, byggðamál og ESB

Hólmgeir Karlsson skrifar
27. júlí 2026 | kl. 06:00

Landlægur misskilningur um þjóðaratkvæðagreiðslu

Hjörtur Hjartarson skrifar
23. júlí 2026 | kl. 13:36

Svæðisborgin Akureyri

Sigurjón Þórðarson skrifar
13. júlí 2026 | kl. 06:00

Evrópusambandið, meira en tollabandalag

Steinar Harðarson skrifar
10. júlí 2026 | kl. 18:00