Fara í efni
Umræðan

Góður sigur hjá KA/Þór en KA tapaði

KA/Þór fagnaði mikilvægum sigri á Selfossi. Mynd: Facebook-síða KA.

KA/Þór sótti Selfyssinga heim í 17. umferð efstu deildar kvenna í handknattleik í gær og vann góðan sigur, 26:22. Liðið tryggði sér þar með endanlega sæti í úrslitakeppni 6 efstu liðanna. Karlalið KA stóð líka í ströngu sunnan heiða en hafði ekki erindi sem erfiði gegn Val í 18. umferð deildarinnar og tapaði 36:31.

Viðureign KA/Þórs og Selfoss var í járnum í fyrri hálfleiki og staðan í leikhléi var jöfn, 13:13. Eftir hlé gekk Selfyssingum erfiðlega að eiga við vörn og markvörslu norðankvenna og KA/Þór náði fljótlega þægilegri forystu. Þeim selfyssku gekk illa að saxa á forskotið og þægilegur 26:22 sigur norðankvenna staðreynd. Markvörðurinn Bernadett Leiner var besti maður vallarsins, með næstum 50% markvörslu.

KA/Þór er enn í 6. sæti deildarinnar en getur ekki endað neðar en það. Með góðum endaspretti gæti liðið þokað sér ofar í töfluna og náð þægilegra sæti áður en úrslitakeppnin hefst. Næsti leikur liðsins er heimaleikur gegn Haukum næstkomandi fimmtudagskvöld.

Mörk KA/Þórs: Tinna Valgerður Gísladóttir 6 (3 víti), Bergrós Ásta Guðmundsdóttir 5, Trude Blestrud Hakonsen 5, Anna Þyrí Halldórsdóttir 4, Susanne Denise Pettersen 3, Sólveig Lára Kristjánsdóttir 2, Elsa Björg Guðmundsdóttir 1.

Varin skot: Bernadett Leiner 18.

Mörk Selfoss: Hulda Dís Þrastardóttir 8 (5 víti), Marte Syverud 3, Arna Kristín Einarsdóttir 3, Eva Lind Tyrfingsdóttir 3, Emelía Ósk Aðalsteinsdóttir 2, Hulda Hrönn Bragadóttir 2, Adela Eyrún Jóhannsdóttir 1.

Varin skot: Sara Xiao Reykdal 12 (1 víti).

Öll tölfræði leiksins hjá HBStatz

Staðan í Olísdeild kvenna

 

Öruggur Valssigur gegn KA

Valsmenn náðu snemma forystunni í viðureign sinni gegn KA, sem þurfti að elta allan tímann. Heimaliðið gaf engin færi á sér og hélt gestunum alltaf í minnsta kosti þriggja marka fjarlægð. Staðan í leikhléi var 17:13 og lokatölurnar 36:31.

KA-menn eru nú í 6. sæti deildarinnar en stutt er í næstu lið og allt getur gerst. Næsti leikur liðsins er heimaleikur gegn ÍBV næstkomandi sunnudag.

Mörk KA: Jens Bragi Bergþórsson 7, Arnór Ísak Haddsson 4, Einar Rafn Eiðsson 4 (3 víti), Bjarni Ófeigur Valdimarsson 4, Einar Birgir Stefánsson 3, Giorgi Dikhaminjia 3, Logi Gautason 2, Morten Linder 2, Dagur Gautason 1, Magnús Dagur Jónatansson 1.

Varin skot: Ágúst Elí Björgvinsson 6 (2 víti), Bruno Bernat 6 (1 víti).

Mörk Vals: Gunnar Róbertsson 10 (2 víti), Arnór Snær Óskarsson 7 (4 víti), Bjarni í Selvindi 6, Dagur Leó Fannarsson 4, Andri Finnsson 3, Allan Norðberg 2, Þorgils Jón Svölu Baldursson 1, Logi Finnsson 1, Daníel Montoro 1.

Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 10, Jens Sigurðarson 0.

Öll tölfræði leiksins hjá HBStatz

Staðan í Olísdeild karla

Pípuhattur borgríkisins

Þóroddur Bjarnason skrifar
15. febrúar 2026 | kl. 08:00

Kæra Akureyri, hvað viltu verða þegar þú verður stór?

Dagný Reykjalín skrifar
13. febrúar 2026 | kl. 16:00

Ingibjörg er ljósið í myrkrinu

Jóhannes Gunnar Bjarnason skrifar
13. febrúar 2026 | kl. 10:40

Allt á floti allsstaðar?

Kristín Helga Schiöth skrifar
11. febrúar 2026 | kl. 09:30

Gleymum við stundum litlu fyrirtækjunum?

Sunna Hlín Jóhannesdóttir skrifar
10. febrúar 2026 | kl. 15:00

Á að höfða til kjósenda eða sérhagsmunahópa?

Þorkell Ásgeir Jóhannsson skrifar
06. febrúar 2026 | kl. 21:30