Fara í efni
Umræðan

Garðar Atli og Tobias keppa í Mónakó

Garðar Atli Gestsson og Tobias Þórarinn Matharel keppa í Mónakó laugardaginn 30. maí.

Garðar Atli Gestsson og Tobias Þórarinn Matharel úr Ungmennafélagi Akureyrar hafa verið valdir til að keppa fyrir Íslands hönd á Smáþjóðameistaramóti Evrópu í frjálsíþróttum í Mónakó laugardaginn 30. maí. Mótið er haldið annað hvert ár og þar koma saman keppendur frá 18 „smáþjóðum“ í Evrópu.

Aðeins einn íþróttamaður frá hverju landi er valinn til keppni í hverri einstaklingsgrein. Garðar mun keppa í spjótkasti í Mónakó en Tobías í langstökki og boðhlaupi.

Þjóðirnar sem taka þátt á mótinu eru, auk Íslands, Andorra, Albanía, Armenía, Aserbaísjan, Bosnía og Hersegóvína, Kýpur, Georgía, Gíbraltar, Kósóvó, Liechtenstein, Lúxemborg, Moldóva, Norður Makedónía, Malta, Mónakó, Svartfjallaland og San Maríno.

Margir kannast við Smáþjóðaleikana sem haldnir eru annað hvort ár. Þar keppa íþróttamenn nokkurra fámennustu landa álfunnar – Andorra, Kýpur, Íslands, Liechtenstein, Lúxemborgar, Möltu, Mónakó, Svartfjallalands og San Marínó – í fjölmörgum greinum. Mótið sem framundan er í Mónakó er einnig haldið á tveggja ára fresti, ekki sömu ár og Smáþjóðleikarnir.

Að loknum kosningum - takk fyrir okkur!

Sindri S. Kristjánsson skrifar
23. maí 2026 | kl. 12:00

Opið bréf til verðandi bæjarstjórnar

Erla Hrönn Unnsteinsdóttir skrifar
21. maí 2026 | kl. 10:10

Söguleg aftaka Hóla í Hjaltadal

Guðni Ágústsson skrifar
20. maí 2026 | kl. 21:00

Samstaða og bjartsýni á landsfundi LEB

Björn Snæbjörnsson skrifar
19. maí 2026 | kl. 15:00

Akureyri tengd til framtíðar

Erik Figueras Torras skrifar
18. maí 2026 | kl. 06:00

Til hamingju með daginn!

Sindri S. Kristjánsson, Hanna Dóra Markúsdóttir og Sigrún Steinarsdóttir skrifa
16. maí 2026 | kl. 12:00