Fara í efni
Umræðan

Sprettu lystilega úr spori í snjónum

Einn, tveir og þrír! Þorbergur Ingi Jónsson, næst fremstur á myndinni í ljósum bol með blátt höfuðfat, kom fyrstur í mark um það bil 6 km eftir að þessi mynd var tekin. Myndir: Skapti Hallgrímsson

Akureyrskir hlauparar komu saman í Lystigarðinum í gær til fyrsta Vetrarhlaups Ungmennafélags Akureyrar (UFA) og LYST á þessum vetri. Ungmennafélagið og veitingastaðurinn tóku höndum saman í fyrrahaust og stofnuðu til mótaraðar sem þótti afar vel heppnuð og því er leikurinn endurtekinn.

Í gær tóku 111 hlauparar þátt; ræst var við LYST og endað á sama stað eftir um 6 km hlaup. Við endamarkið var boðið upp á heitt súkkulaði, súpu og drykki. Fimm hlaup í vetur, síðasta miðvikudag í hverjum mánuði fram í mars að desember undanskildum, þegar UFA heldur árlegt gamlárshlaup. Næsta hlaup í mótaröðinni verður 26. nóvember.

Andrésarleikarnir 50 ára – hálf öld af gleði, samheldni og skíðaarfleifð

Ásthildur Sturludóttir skrifar
22. apríl 2026 | kl. 11:30

Einföldum kerfið og lækkum leikskólagjöld

Heiðbjört Ósk Ófeigsdóttir skrifar
22. apríl 2026 | kl. 11:20

Grípur kerfið barnið?

Guðbjörg Anna Björnsdóttir skrifar
22. apríl 2026 | kl. 11:15

Hlíðarfjall – gullkista Akureyrar

Kristrún María Björnsdóttir skrifar
22. apríl 2026 | kl. 11:00

Sterkari saman

Sindri S. Kristjánsson skrifar
21. apríl 2026 | kl. 16:00

Eflum og byggjum upp Eyrina

Darri Rafn Hólmarsson skrifar
21. apríl 2026 | kl. 11:30