Fara í efni
Umræðan

Þrjár UFA-konur undir 3 klst. í sama maraþoni

Þær Rannveig Oddsdóttir, Anna Berglind Pálmadóttir og Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir höfðu ástæðu til að fagna eftir frábært maraþon í Sevilla. Mynd: Elma Eysteinsdóttir.

Þrjár þaulreyndar hlaupakonur frá Akureyri tóku þátt í Sevilla-maraþoninu í gær og allar náðu þær þeim frábæra árangri að hlaupa þessa 42,195 kílómetra á innan við 3 klukkustundum. Þetta er í fyrsta sinn sem þrjár íslenskar konur hlaupa maraþon á innan við 3 klst. í sama hlaupi.

  • Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir kom í mark á tímanum 2:51:36 klst., sem er hennar besti tími í maraþonhlaupi og fjórði besti tími íslenskrar konu í maraþoni frá upphafi. Sigþóra varð í 8. sæti af 347 í aldursflokki 35-39 ára kvenna í hlaupinu.
  • Anna Berglind Pálmadóttir kom í mark á tímanum 2:51:53 klst., sem er hennar besti tími í maraþonhlaupi og fimmti besti tími íslenskrar konu í maraþoni frá upphafi. Anna Berglind varð í 3. sæti af 403 í aldursflokki 45-49 ára kvenna í hlaupinu.
  • Rannveig Oddsdóttir kom í mark á tímanum 2:53:56 klst. og var innan við hálfri mínútu frá sínum besta árangri sem hún náði árið 2012. Rannveig varð í 2. sæti af 278 í aldursflokki 50-54 ára kvenna í hlaupinu.

Sannarlega stórglæsilegur árangur hjá þessum atorkusömu hlaupakonum úr UFA! Að ná þessum magnaða árangri krefst að sjálfsögðu þrotlausra æfinga og járnvilja, þó að Rannveig segi sjálf að þetta sé ekki flókið: „Hef sagt það áður og endurtek núna. Það er ekkert flókið að hlaupa maraþon, maður stillir bara á réttan hraða í byrjun og reynir að halda honum,“ skrifar Rannveig í uppgjöri eftir hlaupið sem hún birti á Strava, samfélagsmiðli íþróttafólks. Að sjálfsögðu í gamansömum tón – en öllu gamni fylgir yfirleitt einhver alvara!

Eftir því sem akureyri.net kemst næst eru þetta 5 bestu tímar íslenskra kvenna í maraþonhlaupi:

  • 2:35:15 – Martha Ernstsdóttir ÍR, 1999 í Berlín
  • 2:42:15 – Andrea Kolbeinsdóttir ÍR, 2023 í Reykjavík
  • 2:44:48 – Elín Edda Sigurðardóttir ÍR, 2019 í Frankfurt
  • 2:51:36 – Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir UFA, 2026 í Sevilla
  • 2:51:53 – Anna Berglind Pálmadóttir UFA, 2026 í Sevilla

Öryggi í fyrirrúmi - sameinumst öll um nýja Slökkvistöð á Akureyri

Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir skrifar
15. apríl 2026 | kl. 17:00

Er Loftbrúin næst?

Sverre Jakobsson skrifar
15. apríl 2026 | kl. 16:30

Gleymda forvörnin

Stefán Oddur Hrafnsson skrifar
15. apríl 2026 | kl. 12:00

Áfram menning og listir, ekki bara á tyllidögum!

María Pálsdóttir skrifar
15. apríl 2026 | kl. 11:11

Siglingahús Nökkva – klárum verkefnið!

Tryggvi J. Heimisson skrifar
15. apríl 2026 | kl. 09:30

Gamall maður fer í framboð

Ragnar Sverrisson skrifar
15. apríl 2026 | kl. 08:45