Fara í efni
Umræðan

Falleg fótboltaveisla Þórs og KA – MYNDIR

Þórsarinn Einar Freyr Halldórsson sendir boltann á laugardaginn. KA-mennirnir eru Jeppe Pedersen (8) og Markús Máni Pétursson (23). Mynd: Skapti Hallgrímsson

Nýliðinn laugardagur var frábær auglýsing fyrir íþróttabæinn Akureyri og skólabókardæmi um hvernig hægt er að skapa góða umgjörð um knattspyrnuleik og hvernig stuðningsmenn bæði Þórs og KA geta skapað skemmtilega stemningu. Þórsarar höfðu gríðarlega vinnu í að gera allt klárt á nýja gervigrasvellinum, VÍS-vellinum á Ásnum, austast á félagssvæðinu og þar var allt upp á tíu.

Akureyrarfélögin höfðu ekki mæst í efstu deild Íslandsmótsins í knattspyrnu í heil 24 ár þannig að dagurinn var langþráður og þau fleygu orð loksins, loksins áttu sannarlega vel við.

 

Hræðileg meiðsli Þórsarans Isaac Atanga strax á fyrstu mínútu leiksins drógu skiljanlega úr stemningunni um tíma; þessi snjalli útherji fótbrotnaði illa og atvikið var sorglegur blettur á fallegum degi að öðru leyti. Sumir halda því vitaskuld fram að einnig beri að nefna úrslitin í þessu samhengi, en um það verða allir sammála og því látið liggja á milli hluta! KA sigraði 1:0 eins og áður hefur verið fjallað um og gleðin var  því gul og blá í bænum á laugardaginn – og er án nokkurs vafa enn!

„Þór og KA eiga alltaf að vera í sömu deild. Helst í Bestu deildinni. Hvað svo sem fólk vill segja um gæðin sem Akureyrarliðin buðu upp á þegar þau mættust á nýja Þórsvellinum í dag, laugardag, þá er þetta það sem við viljum sjá í íslenska fótboltanum,“ skrifaði Víðir Sigursson, reyndasti íþróttafréttamaður landsins og höfundur bókanna Íslensk knattspyrna síðustu 45 ár, í umsögn um leikinn fyrir akureyri.net.

Þetta var eiginlega „erlendis“

„Löngu uppselt á leikinn, gríðarleg stemning, upphitun hjá stuðningsfólki, áhorfendur búnir að koma sér fyrir 30-45 mínútum fyrir leik, kítingur á milli fylgismanna liðanna. Þórsara í nýju stúkunni og viðbótum við hana og KA-manna á áhorfendapöllunum sem settir voru upp til bráðabirgða fyrir aftan syðra markið,“skrifaði Víðir og bætti við: Þetta var eiginlega „erlendis“.

Formaður KSÍ, Þorvaldur Örlygsson, Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri á Akureyri og Sveinn Elías Jónsson, formaður knattspyrnudeildar Þórs heilsuðu upp á leikmenn liðanna áður en Ívar Orri Kristjánsson flautaði til leiks við „undirspil“ hátt í 2000 raddband sem þanin voru til ýtrasta.

Hér býður akureyri.net til mikillar myndaveislu og hvetur Akureyringa í leiðinni – eins og Víðir gerði í greininni um leikinn – til að merkja strax við mánudagskvödið 27. júlí, þegar félögin mætast í deildinni á KA-vellinum! Full ástæða til að hlakka til þess dags, eins og Víðir sagði.

Umfjöllun akureyri.net um leikinn:

Uppbygging íþróttamannvirkja á Akureyri – hugsum lengra

Sindri S. Kristjánsson skrifar
04. maí 2026 | kl. 13:00

Verndum græn svæði – engin óhófleg þétting byggðar

Sigurbjörg Níelsdóttir skrifar
03. maí 2026 | kl. 20:00

Akureyrarmódelið: Endurvakið og endurbætt

Þóroddur Ingvarsson og Ingvar Þóroddsson skrifa
03. maí 2026 | kl. 19:00

Um Hlíðarskóla og jafnræði landshluta

Ingvar Þóroddsson skrifar
03. maí 2026 | kl. 18:30

Vilja stjórnvöld halda Grímsey í byggð?

Ásthildur Sturludóttir skrifar
03. maí 2026 | kl. 11:00

Sorgin þegar fólk fellur á milli kerfa

Harpa Guðbrandsdóttir skrifar
03. maí 2026 | kl. 06:00