Fara í efni
Umræðan

Þórsarar selja sæti til að fjármagna stúkuna

Mynd: Skapti Hallgrímsson

Þórsarar fjármagna sjálfir áhorfendastúkuna við nýjan gervigrasvöll félagsins, VÍS-völlinn á Ásnum, þar sem hún var ekki hluti af samningnum við Akureyrarbæ um uppbyggingu á svæðinu. Stúkan, sem tekur um 500 manns í sæti, kostar 15 milljónir króna og Þórsarar tóku upp á því að selja sæti til að fjármagna þennan nauðsynlega þátt verkefnisins og það gekk mjög vel, að sögn Sigurðar Pálssonar sem sá um málið fyrir hönd félagsins.

Hvert sæti kostar 100 þúsund krónur. „Ég er búinn að selja 123 sæti,“ sagði Sigurður Pálsson, „og enn er að bætast við, þeir sem hafa áhuga geta haft samband við mig.“ Hann hefur því safnað 12,3 milljónum hingað til og kveðst alsæll með viðtökurnar.

Um síðustu helgi boðaði Sigurður kaupendur á sinn fund í félagsheimilinu Hamri, þangað mætti hópur fólks sem keypt hafði sæti eða fulltrúar þeirra, til að velja sér stað í stúkunni. Margir keyptu í eigin nafni en einnig í nafni Þórsara sem eru látnir og dagurinn var „merkilegur“ að því leyti að umrædd sæti voru merkt með nafni.

Sigurður er afar þakklátur fyrir góð viðbrögð við þessari skemmtilegu fjáröflun og fyrir uppátækið mun hann nú hafa fengið nýtt gælunafn að sögn gárunganna – Siggi sæti ...

  • Héðan í frá hafa eigendur eða fulltrúar þeirra forgang að merktu sæti þar til 15 mínútum fyrir leik

Nöfn kaupenda eru skráð á skilti á nyrðri hlið stúkunnar.

Mynd: Ármann Hinrik

Getur verslun blómstrað á Akureyri?

Gunnar Már Gunnarsson skrifar
01. maí 2026 | kl. 14:00

Grunnskólar Akureyrar: Sterkur grunnur – en aðgerða þörf

Guðjón Andri Gylfason skrifar
01. maí 2026 | kl. 13:00

Hvar vilja aldraðir búa?

Preben Jón Pétursson skrifar
01. maí 2026 | kl. 06:00

Bílastæðahús, hvar og hvernig? Nokkrar hugmyndir að bílastæðahúsi á Akureyri

Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
30. apríl 2026 | kl. 18:00

Kostnaður, ójöfnuður og þátttaka barna í íþróttum á Akureyri

Sigrún Steinarsdóttir skrifar
30. apríl 2026 | kl. 08:00

Akureyrarleiðin virkar: Velferð barna og fagmennska í leikskólum

Heimir Örn Árnason skrifar
29. apríl 2026 | kl. 16:30