Fara í efni
Umræðan

Í fótspor feðranna, mark Bjarka, Sandor kveður

Þór og KA mætast í dag í efstu deild Íslandsmótsins í knattspyrnu eins fjallað hefur verið um síðustu daga. Margir bíða leiksins með óþreyju enda 24 ár síðan félögin mættust í efstu deild. Þau voru síðast samtímis í deild þeirra bestu árið 2002 en síðast í sömu deild fyrir 10 árum, árið 2016, í næstu deild – Inkasso-deildinni eins og hún kallaðist þá.

  • Vert er að vekja athygli á því að neðst í þessari grein eru hlekkir á mjög skemmtilegar og fróðlegar greinar Víðis Sigurðssonar, reyndasta íþróttafréttamanns landsins, sem hann skrifaði nýlega fyrir akureyri.net í tengslum við leikinn í dag og um þátttöku Akureyrarfélaganna á Íslandsmótinu.

Þegar Akureyrarliðin mættust síðast í deild þeirra bestu árið 2002 fóru leikar þannig að KA vann fyrri leikinn 30. maí, 1-0, og líka seinni leikinn sem fram fór 1. ágúst, einnig 1-0. Leikurinn í maí var sögulegur því það var fyrsti sigur KA á Þór í efstu deild í 14 tilraunum, eins og Víðir rifjaði upp í einni greininni.

Félögin mættust síðast í deildarkeppni sumarið 2016 og þá vann KA líka báða leikina, 1:0 á Akureyrarvelli og 3:0 á Þórsvelli í lokaumferðinni. KA sigraði í deildinni það ár og hefur leikið í efstu deild síðan. Þórsarar unnu sér svo rétt til þátttöku í efstu deild á ný síðastliðið haust þegar þeir sigruðu í næst efstu deild, Lengjudeildinni.

  • Hér eru nokkrir áhugaverðir punktar, m.a. frá síðasta deildarleik liðanna, á Þórsvellinum laugardaginn 24. september 2016

HEIÐURSSKIPTING SANDORS

  • Markvörðurinn frábæri, Sandor Matus, lék í 13 ár á Akureyri, fyrst með KA frá 2004 til 2013 og síðan með Þór frá 2014 til 2016. Þannig vildi til að síðasti leikur hans var grannaslagurinn á Þórsvelli 24. september 2016, í lokaumferð næst efstu deildar, síðasta rimma Akureyrarfélaganna í deildarkeppni.
  • Sandor stóð í marki Þórs fyrsta klukkutímann en fékk þá heiðursskiptingu. Aron Birkir Stefánsson, sem steig fyrstu skrefin í meistaraflokki þetta sumar, leysti Sandor af hólmi. Á myndunum faðmast markverðirnir og fyrir neðan er Sandor með þjálfurum liðanna, Halldóri Jóni Sigurðssyni – Donna, Þórsara, og Srdjan Tufegdzic hjá KA en þeir félagarnir léku saman í KA-liðinu í átta ár, frá 2006 til 2014.
  • Aron Birkir hefur verið aðalmarkvörður Þórs allar götur síðan hann leysti Sandor af hólmi sumarið 2016 og er nú fyrirliði liðsins.

Myndir: Skapti Hallgrímsson

  • Þetta var þriðji deildarleikur Arons Birkis. Hann hafði tvisvar verið í byrjunarliðinu fyrir umræddan leik við KA. Fyrst í 3:1 sigri á Fjarðabyggð á Þórsvellinum 27. ágúst og síðan 3. september þegar Þórsarar töpuðu 3:2 fyrir Leikni frá Fáskrúðsfirði í Fjarðabyggðahöllinni 3. september.
  • Staðan var 2:0 þegar Sandor fékk heiðursskiptinguna. Aron Birkir fékk því á sig eitt mark; það var hægri bakvörðurinn Bjarki Þór Viðarsson sem skoraði. Hann gekk til liðs við Þór fyrir leiktíðina 2018 og var samherji Arons Birkis allt þar til haustið 2024 en leikur nú með Magna.
  • Aron Birkir var gerður að fyrirliða Þórs áður en keppnistímabilið 2024 hófst og tók þá við fyrirliðabandinu af ... Bjarka Þór Viðarssyni sem hafði gegnt embætti fyrirliða Þórs í tvö ár.
  • Af þeim sem tóku þátt í leik Akureyrarliðanna í september 2016 eru sex enn í herbúðum félaganna; Aron Birkir og Hermann Helgi Rúnarsson með Þór og þeir Hallgrímur Mar Steingrímsson, Ásgeir Sigurgeirsson, Hrannar Björn Steingrímsson og Jakob Snær Árnason með KA. Sá síðastnefndi var reyndar með Þór á þessum tíma og kom einmitt inn á í umræddum leik gegn KA á 39. mínútu.
  • Hermann Helgi steig fyrstu skrefin með Þór þetta sumar; kom inn á síðustu mínúturnar gegn Fjarðabyggð 27. ágúst, þegar Aron Birkir var í fyrsta skipti í byrjunarliðinu.

Í FÓTSPOR FEÐRANNA

  • Ingi Hrannar Heimisson lék með Þór frá 1996 til 1998 og aftur frá 2001 til 2007. Einn samherja hans 2000 til 2003 var Hlynur Svan Eiríksson. Syni þeirra leika nú saman með Þór.

Feðgar – Ingi Hrannar Heimisson, lengst til vinstri, í leik með Þór gegn Dalvík/Leiftri sumarið 2003, og Sverrir Páll Ingason í viðureigninni gegn Fram á dögunum. Lengst til hægri á eldri myndinni er Hallgrímur Jónasson, núverandi þjálfari KA, en hann lék með Þór 2003, 2004 og 2005. Myndir: Skapti Hallgrímsson og Ármann Hinrik.

Feðgar – Ágúst Eðvald Hlynsson í leiknum gegn Fram á dögunum, og Hlynur Svan Eiríksson, sem var fyrirliði í nokkrum leikjum sumarið 2002, síðast þegar Þór og KA mættust í efstu deild. Ágúst Eðvald lék með Þór sem strákur og gekk til liðs við félagið á ný fyrir þessa leiktíð. Myndir: Ármann Hinrik og Skapti Hallgrímsson


BJARKI SKORAR HJÁ ARONI

Bjarki Þór Viðarsson gerði þriðja og síðasta mark KA í 3:0 sigrinum á Þór 24. september 2016 eins og nefnt var að ofan. Myndin er tekin á því augnabliki; Bjarki Þór er lengst til hægri. Bjarki er ekki þekktur sem mikill markaskorari: Þetta var eina mark hans fyrir KA , hann gerði svo eitt mark fyrir Þór á Íslandsmótinu sumarið 2018, annað 2019, tvö árið 2020 og eitt mark 2021. Mynd: Skapti Hallgrímsson


Víðir Sigurðsson, reyndasti íþróttafréttamaður Íslands, skrifaði þrjá afar fróðlegar og skemmtilegar greinar fyrir akureyri.net sem birtust nýlega, þar sem hann rifjaði upp eitt og annað í tengslum við leikinn í dag og þátttöku Akureyrarfélaganna á Íslandsmótinu.

Hér eru hlekkir á greinar Víðis: 

Getur verslun blómstrað á Akureyri?

Gunnar Már Gunnarsson skrifar
01. maí 2026 | kl. 14:00

Grunnskólar Akureyrar: Sterkur grunnur – en aðgerða þörf

Guðjón Andri Gylfason skrifar
01. maí 2026 | kl. 13:00

Hvar vilja aldraðir búa?

Preben Jón Pétursson skrifar
01. maí 2026 | kl. 06:00

Bílastæðahús, hvar og hvernig? Nokkrar hugmyndir að bílastæðahúsi á Akureyri

Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
30. apríl 2026 | kl. 18:00

Kostnaður, ójöfnuður og þátttaka barna í íþróttum á Akureyri

Sigrún Steinarsdóttir skrifar
30. apríl 2026 | kl. 08:00

Akureyrarleiðin virkar: Velferð barna og fagmennska í leikskólum

Heimir Örn Árnason skrifar
29. apríl 2026 | kl. 16:30