Fara í efni
Umræðan

Er allt að fara til fjandans í þessum heimi?

Það hefur víst ekki farið fram hjá neinum hversu mjög allt hefur færst til verri vegar á jarðarkringlunni okkar. Stríðsátök hafa brotist út hér og þar með hörmulegum afleiðingum og enginn veit hvernig endirinn verður. Haldi fram sem horfir má allt eins vænta að gríðarleg eyðilegging muni blasa við auk þess sem milljónir munu liggja í valnum, flestir saklausir borgarar þegar yfir líkur.

Segja má að Bandaríkin og Ísrael beri mesta ábyrgð á því sem komið er, en mörg önnur ríki dregist inn í átökin ýmist til að verjast eða hjálpa þeim sem hófu óöldina. Í stuttu máli sagt er framtíðin ekki björt. Donald Thrömph forseti Bandaríkjanna sækist eftir að taka yfir Grænland og segist gera það þegar hann hefur tíma. Fyrst þurfi hann að klára blóðugar aðgerðir annarsstaðar um þessar mundir. Næsta víst er að þegar og ef hann tekur Grænland, verður næsta verk að bæta Íslandi í hópinn. Það verður væntanlega til þess að koma þar upp herstöð til að auðvelda yfirtöku fleiri ríkja í Evrópu. Ekki kæmi á óvart að félagi hans og vopnabróðir í Rússlandi komi með í slaginn. Það verða þá fleiri en Úkraína sem munu eiga um sárt að binda.

Ef ekki verður bráðlega breyting á, er lítið annað en heimsendir í nánd, sem oft hefur verið spáð. En þegar neyðin er stærst er hjálpin næst. Fyrstu merki þess að gripið verði í taumana, og má ekki seinna vera eru farin að sjást. Bandaríkjamenn eru að snúast gegn Thrömph og samherjar hans hátt settir farnir að snúa baki við honum. Það eina sem dugar er að velta honum úr sessi og því fyrr því betra. Ísrael er að missa flesta sína vini. Þeir hafa miskunnarlaust murkað lífið úr nágrönnum sínum þúsundum saman og blása á allar tilraunir annarra ríkja til að fá þá til að hætta árásum sínum. Raunar eru það leiðtogar Bandaríkjanna og Ísrael fyrst og fremst sem þarf að fjarlægja með öllum þeim ráðum sem hægt er að beita, þeir eru kóngarnir á skákborðinu.

Með hvarfi þeirra verður mun auðveldara að koma vitinu fyrir þeirra leppa. Rússar hafa í nokkur ár níðst á Úkraínumönnum sem hafa fengið alltof litla aðstoð í baráttunni við Rússa sem engu eira og fara sínu fram hvað sem tautar og raular. Rússar eiga svo sannarlega betra skilið en harðstjórn Pútins litla sem vill vera í hópi stóru strákanna. Hann á þó erfitt með að komast í hópinn enda þekktur fyrir óheiðarleika í alla staði og útilokað að taka hann alvarlega. Viktor Urban forseta Ungverjalands verður vonandi velt úr sessi í kosningum á næstunni, enda lítill mannvinur þar á ferð.

Að lokum vil ég segja að þó ég sé ekki bjartsýnn er enn von. Hún hangir þó á því að Bandaríkin sjái ljósið og pólarnir tveir Demókratar og Republikanar sameinist í þetta eina sinn og velti Trömph úr sessi og boði sem fyrst til kosninga. 

Þorleifur Leó Ananíasson er Akureyringur
P.s. Vörum okkur á, og kjósum ekki yfir okkur flokk eða flokka sem virða ekki heiðarleika né samstöðu þjóðarinnar okkar.

Indverskur matur og kvíðaspurningin

Inga Dagný Eydal skrifar
10. október 2026 | kl. 06:00

Réttlát kjördæmaskipan og ofríki stærðfræðinganna

Þóroddur Bjarnason skrifar
07. október 2026 | kl. 15:00

Mikilvægi endurhæfingar í hvetjandi og náttúrulegu umhverfi

Jón Hlöðver Áskelsson skrifar
06. október 2026 | kl. 13:00

Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað

Díana Jóhannsdóttir og Örlygur Hnefill Örlyggson skrifa
05. október 2026 | kl. 15:00

Fróðlegir fundir í kjördæminu

Sigurjón Þórðarson skrifar
05. október 2026 | kl. 07:15

Öflugt atvinnulíf þarf gott aðgengi að lóðum

Sunna Hlín Jóhannesdóttir skrifar
30. september 2026 | kl. 20:15