Fara í efni
Umræðan

Blak: Bæði KA-liðin unnu auðveldan sigur

Það vantaði ekki tilþrifin í KA-heimilinu í gær þegar bæði kvenna- og karlalið KA unnu sigur á Þrótturum frá Neskaupstað. Mynd: Facebook-síða KA.

Bæði kvenna- og karlalið KA tóku á móti Þrótti frá Neskaupstað í efstu deild í blaki í gær. Auðveldur 3:0 sigur vannst í báðum leikjum.

Þróttarstúlkur eru neðstar í kvennadeildinni og fyrirfram var kannski ekki búist við að KA myndi lenda í vandræðum í leiknum. Það gekk eftir og KA var með öll tök á leiknum þótt Þróttarar stæðu reyndar vel í heimastúlkum í annarri hrinu. Hrinurnar fóru 25:20, 25:20 og 25:14 og KA er sem fyrr í öðru sæti deildarinnar, á eftir HK. Um næstu helgi fer KA suður og leikur gegn Reykjavíkur-Þrótti og Aftureldingu.

Karlarnir lentu í smávegis basli í fyrstu hrinunni í sinni viðureign og Þróttur leiddi hana lengst af. En KA náði að komast yfir í lokin og vinna nauman 25:23 sigur. Hins vegar var aldrei vafi um úrslitin í næstu tveimur hrinum, sem báðar unnust 25:16. Sem fyrr er allt í járnum í toppbaráttunni í deildinni og næstu leikir verða gríðarlega þýðingarmiklir. Þá kemur Afturelding norður og leikur tvisvar við KA en þessir leikir verða 28. febrúar og 1. mars.

Staðan í Unbrokendeild kvenna í blaki

Staðan í Unbrokendeild karla í blaki 

Opið bréf til íslenskra fjölmiðla - Hver eru markmið ykkar?

Daníel Andri Eggertsson skrifar
12. mars 2026 | kl. 13:30

„Flest mulig – lengst mulig“ á Akureyri

Þóroddur Ingvarsson skrifar
12. mars 2026 | kl. 07:00

Lífsgæðakjarni við Rangárvelli

Þórhallur Jónsson skrifar
11. mars 2026 | kl. 16:45

Hljómburður í Matthíasarkirkju

Gísli Sigurgeirsson skrifar
10. mars 2026 | kl. 18:00

Treystu þjóðinni. Þú ert með tromp á hendi

Stjórn Stjórnarskrárfélagsins skrifar
09. mars 2026 | kl. 15:45

Hvernig fjölga Akureyringar sér?

Þóroddur Bjarnason skrifar
08. mars 2026 | kl. 11:00