Fara í efni
Umræðan

Ásýnd svæðis enn óviðunandi

Athafnasvæði Skútabergs að Moldhaugahálsi. Myndin er tekin í júní 2024. Mynd: Þorgeir Baldursson.

Heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra hótar beitingu þvingunarúrræða, þar á meðal álagningu dagsekta, verði fyrirtækið Skútaberg ekki við kröfum um úrbætur á starfssvæði þess á Moldhaugahálsi. 

Heilbrigðisnefndin veitti Skútabergi frest til 1. ágúst til að ljúka úrbótum, en fram kemur í bókun nefndarinnar á fundi 11. september að þrátt fyrir að vinna við að flytja vinnubúðaeiningar, gáma og aðra lausamuni inn á nýtt geymslusvæði sé hafin séu slíkir hlutir enn áberandi og vel sýnilegir frá þjóðvegi og ásýnd svæðisins því enn óviðunandi.

Mynd tekin í mars á þessu ári. Mynd: Þorgeir Baldursson.

„Nefndin krefst þess að fyrir 1. október 2026 liggi fyrir skrifleg og tímasett úrbótaáætlun um tiltekt á svæðinu og flutning gáma, vinnubúðaeininga og annarra lausamuna inn á geymslusvæðið,“ segir meðal annars í bókun nefndarinnar. Jafnframt skuli fyrir sama tíma hafa orðið verulegar og sýnilegar umbætur á ásýnd svæðisins, einkum hvað varðar þá lausamuni sem sýnilegir eru frá þjóðvegi. Að mati nefndarinnar hefur sá frestur sem áður var veittur ekki skilað fullnægjandi úrbótum.

Áður hafði heilbrigðisnefndin áminnt Skútaberg ehf. í nóvember í fyrra vegna brots á reglugerð um hollustuhætti og vegna brots á reglugerð um meðhöndlun úrgangs. Nefndin samþykkti þá að veita lokafrest til 1. janúar til að flytja vörugáma, vinnubúðaeiningar og flutningabíla með vörukössum inn á varanlegt geymslusvæði. Framkvæmdaáætlun sem fyrirtækið lagði fyrir heilbrigðisnefndina snemma árs 2025 gerði ráð fyrir að þessir flutningar færu fram í september og október í fyrra.

Öflugt atvinnulíf þarf gott aðgengi að lóðum

Sunna Hlín Jóhannesdóttir skrifar
30. september 2026 | kl. 20:15

Beinum kastljósinu að atvinnulífinu

Karl Eskil Pálsson skrifar
29. september 2026 | kl. 20:15

Bókasöfnin okkar

Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar
28. september 2026 | kl. 06:00

Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein

Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar
27. september 2026 | kl. 06:00

Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
23. september 2026 | kl. 20:00

Hvað ef það væri samfélagsgarður við Mýrarveg?

Eyrún Gígja Káradóttir skrifar
22. september 2026 | kl. 19:00