Fara í efni
Umræðan

Alvöru breskur farsi frumsýndur í Freyvangi

Engin lognmolla verður á fjölum Freyvangsleikhússins, þegar Tom, Dick og Harry verður frumsýnt. Mynd: aðsend

Gamanleikurinn Tom, Dick og Harry eftir breska gamanleikhöfundinn Ray Cooney og son hans Michael Cooney verður frumsýndur hjá Freyvangsleikhúsinu í kvöld, föstudagskvöld. Þetta er fimmta verkið sem Ólafur Jens Sigurðsson leikstýrir í Freyvangi, en blaðamaður akureyri.net sló á þráðinn til Ólafs.

„Verkið er hefðbundinn breskur farsi frá árinu 2006,“ segir Ólafur, um leikverkið. „Það eru ærsl og læti á sviðinu og flækjur sem þarf að leysa. Sagan hverfist um hjón sem ætla að ættleiða barn, en bræður mannsins trufla það ferli töluvert. Það er von á fulltrúa frá ættleiðingarstofunni til þess að taka út heimilið og hjónin, og bræðurnir stefna þessu öllu í hættu.“ 

„Leikhúsgestir fylgja þessum persónum einn dag í þeirra lífi, þar sem margt kemur upp á. Verkið er uppfullt af kómík og látum.“ 

Ólafur Jens segir að ferlið hafi gengið frábærlega, en um er að ræða einvala lið leikara og hafa sumir leikið með Freyvangsleikhúsinu áratugum saman en aðrir eru að koma í liðið í fyrsta skipti. „Þetta er frábær hópur sem er að rúlla þessu upp,“ segir Ólafur Jens að lokum, spenntur fyrir frumsýningunni. 

Miðar á sýninguna eru seldir á tix.is

 

Aukið frelsi og sanngjarnt verð

Sigurjón Þórðarson skrifar
05. júní 2026 | kl. 08:00

Af trjám, sól, skjóli og yndi

Ingólfur Jóhannsson skrifar
29. maí 2026 | kl. 06:00

Að þora ekki að ræða við nágranna sína

Ragnar Sverrisson skrifar
26. maí 2026 | kl. 13:15

Að loknum kosningum - takk fyrir okkur!

Sindri S. Kristjánsson skrifar
23. maí 2026 | kl. 12:00

Opið bréf til verðandi bæjarstjórnar

Erla Hrönn Unnsteinsdóttir skrifar
21. maí 2026 | kl. 10:10

Söguleg aftaka Hóla í Hjaltadal

Guðni Ágústsson skrifar
20. maí 2026 | kl. 21:00