Fara í efni
Umræðan

Aðgengi og jafnrétti eru ekki sérréttindi heldur mannréttindi

Réttindi fatlaðs fólks hafa í gegnum tíðina verið baráttumál en á síðustu áratugum hefur margt áunnist í átt að auknu jafnrétti og þátttöku í samfélaginu. Samt sem áður stendur enn ýmislegt út af borðinu þegar kemur að aðgengi, menntun, atvinnu og félagslegri þátttöku.

Árið 2006 samþykktu Sameinuðu þjóðirnar samning um réttindi fatlaðs fólks (SRFF), sem Ísland fullgilti árið 2016. Samningurinn kveður á um að allir fatlaðir einstaklingar skuli njóta fullra mannréttinda til jafns við aðra og að ríki skuldbindi sig til að ryðja úr vegi hindrunum sem hindra þátttöku þeirra í samfélaginu. Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur mun leggja fram frumvarp á vorþingi um að lögfesta samninginn í heild sinni. Þetta þýðir að íslensk lögregla og dómstólar þurfa að fylgja ákvæðum samningsins og að einstaklingar og stofnanir á Íslandi verða skuldbundin til að tryggja réttindi fatlaðs fólks í samræmi við hann.

Aðgengi og sjálfstætt líf

Aðgengi er stórt réttindamál. Fatlaðir einstaklingar eiga enn í miklum erfiðleikum með að komast í opinberar byggingar, nota samgöngur og nálgast upplýsingar. Þrátt fyrir lög um algilda hönnun og aðgengi er enn of algengt að hindranir standi í vegi fyrir fullri þátttöku.

Á Íslandi eru lögfest lög um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, sem eiga að tryggja réttinn til að lifa sjálfstæðu lífi með viðeigandi stuðningi. Þrátt fyrir það þurfa margir fatlaðir einstaklingar enn að berjast fyrir sjálfsögðum réttindum sínum. Sjálfstætt líf er lykilatriði í réttindabaráttu fatlaðs fólks, en þeir sem þurfa slíkan stuðning eiga oft erfitt með að fá nægjanlega aðstoð eða húsnæði sem hentar þeirra þörfum.

Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins er tekið fram að fjármagna skuli þann fjölda samninga um notendastýrða persónulega aðstoð (NPA) sem hefur verið lofað. Einnig verður stofnaður aðgengis- og aðlögunarsjóður til að styrkja fatlað fólk við aðlögun á húsnæði.

Menntun og atvinna

Fatlaðir nemendur eiga rétt á námi við sitt hæfi en í raunveruleikanum eru úrræði oft takmörkuð. Sérúrræði eru ekki alltaf aðgengileg og mörgum skólum skortir nægjanlegan stuðning.

Atvinnuþátttaka fatlaðs fólks er enn mun minni en ófatlaðra. Þessi staða stafar bæði af fordómum og skorti á stuðningi á vinnumarkaði. Þótt ýmsir styrkir standi fyrirtækjum til boða sem ráða fatlaða einstaklinga til vinnu nægir það oft ekki til að tryggja raunverulega atvinnuþátttöku. Ríkisstjórnin ætlar að styrkja atvinnuþátttöku fatlaðs fólks og huga sérstaklega að stöðu þess í menntakerfinu.

Fordómar og samfélagsleg viðhorf

Þrátt fyrir að lagaramminn sé til staðar mæta fatlaðir einstaklingar enn fordómum og hindrunum í samfélaginu. Of oft er ætlast til þess að þeir „aðlagi sig“ að umhverfinu í stað þess að umhverfið sé gert aðgengilegt fyrir alla. Jákvæð viðhorfsbreyting hefur þó átt sér stað ekki síst fyrir tilstilli öflugrar baráttu fatlaðs fólks og stuðningsaðila.

Þrátt fyrir miklar framfarir er enn langt í land með að tryggja algjört jafnræði. Mikilvægt er að samfélagið haldi áfram að vinna að jafnri þátttöku allra óháð færni eða fötlun. Þetta krefst bæði pólitískra aðgerða og viðhorfsbreytinga þar sem aðgengi og jafnrétti eru ekki sérréttindi heldur mannréttindi.

Við vitum aldrei hver verður næstur.

Eydís Ásbjörnsdóttir er þingmaður Norðausturkjördæmis fyrir Samfylkinguna

Listin að vera ósammála

Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar
22. desember 2025 | kl. 10:00

Flugþróunarsjóður efldur

Ingvar Þóroddson skrifar
21. desember 2025 | kl. 11:00

Makríllinn vannýttur

Sigurjón Þórðarson skrifar
19. desember 2025 | kl. 06:00

Opið bréf til samgönguráðherra

Sigrún Gísladóttir skrifar
16. desember 2025 | kl. 21:00

Treystir Viðreisn þjóðinni í raun?

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
15. desember 2025 | kl. 10:00

Hvað þarf að gerast til að stórauka framboð íbúða og lækka verðið?

Benedikt Sigurðarson skrifar
13. desember 2025 | kl. 11:30