Fara í efni
Umræðan

113 ábendingar bárust vegna Tónatraðar

Alls bárust 113 ábendingar af ýmsum toga við skipulagslýsingu vegna breytinga á skipulagi svæðis við Spítalaveg og Tónatröð.

Flestar ábendingarnar snúa að umfangi bygginga á svæðinu og áhrifum á ásýnd eldri byggðar. Einnig bárust ábendingar sem lúta að umferðarmálum, mögulegri skriðuhættu og stjórnsýslu bæjarins við ákvörðun um að fara í breytingu á skipulagi.

Skipulagslýsingin hefur verið í kynningu frá 15. desember og frestur til að senda inn ábendingar um skipulagslýsinguna rann út í síðustu viku.

Næstu skref eru þau að skipulagsráð og bæjarstjórn þurfa að taka afstöðu til áframhaldandi skipulagsvinnu í ljósi þeirra ábendinga og umsagna sem bárust. Í vikunni bárust niðurstöður jarðvegsrannsókna á svæðinu og hafa þær verið sendar Veðurstofu Íslands til umsagnar. „Veðurstofan er sá óháði aðili sem sér um að meta hvort að framkvæmdir á þessu svæði geti orðið fyrir eða jafnvel haft neikvæð áhrif á ofanflóð og skriðuhættu,“ segir á vef bæjarins.

„Þá hafa verið í gangi mælingar á umferð á nokkrum stöðum í nágrenni við framkvæmdasvæðið og verða þær upplýsingar nýttar til að meta vandlega áhrif skipulagsbreytinganna á umferð til og frá svæðinu. Hefur verkfræðistofan Mannvit verið fengin til að meta áhrif skipulagsbreytinganna á umferð.“

Skipulagsráð fundar næst 26. janúar og verða þau gögn sem liggja fyrir á þeim tíma lögð fram til kynningar. Ákvörðun um áframhald málsins verður þó ekki tekin fyrr en að öll gögn liggja fyrir.

  • „Skipulagslýsing er lýsing á verkefninu „og þar með fyrsta skref í skipulagsferlinu, þar sem fram koma upplýsingar um helstu áherslur og markmið, forsendur, umhverfismat og rannsóknir, samráð, kynningu og fleira. Fólk var hvatt til að koma á framfæri ábendingum, ýmist í gegnum sérstakt ábendingaform á heimasíðu bæjarins, netfang eða með bréfpósti,“ segir á vef Akureyrarbæjar.
  • Þar segir ennfremur: „Öllum þeim sem sendu inn ábendingu er þakkað kærlega fyrir þeirra framlag. Ábendingarnar verða hafðar til hliðsjónar við áframhaldandi vinnslu málsins ásamt athugasemdum frá umsagnaraðilum eins og Skipulagsstofnun, Minjastofnun, hverfisnefnd Brekku og Innbæjar, Norðurorku, Isavia og Veðurstofunni.“

Hér er vefsvæði með helstu upplýsingum um fyrirhugaðar skipulagsbreytingar.

Hin gáttin

Þórhallur Jónsson skrifar
16. september 2025 | kl. 15:00

Samgöngufélagið Þjóðbraut

Jens Garðar Helgason skrifar
16. september 2025 | kl. 11:20

Stöndum með Háskólanum á Akureyri

Jón Bjarnason skrifar
15. september 2025 | kl. 22:00

Sterkt skólasamfélag á Akureyri, sameiginleg ábyrgð og framtíðarsýn

Heimir Örn Árnason skrifar
13. september 2025 | kl. 12:00

Reynslunni ríkari eftir fjár­hags­leg á­föll síðustu ára

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
09. september 2025 | kl. 08:00

Börnin í Móahverfi sem munu þurfa skutl um allan bæ

Páll Pálsson skrifar
02. september 2025 | kl. 16:30