Fara í efni
Pistlar

Valdimar Logi semur við KA út sumarið 2028

Mynd af vef KA

Valdimar Logi Sævarsson, miðjumaðurinn stórefnilegi, hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við knattspyrnudeild KA og er nú samningsbundinn félaginu út sumarið 2028. 

Valdimar, sem er 19 ára, kom við sögu í sjö leikjum í Bestu deildinni í sumar og hefur tekið þátt í alls 31 leik með meistaraflokki á Íslandsmóti, í bikarkeppni og Evrópukeppni síðan hann steig fyrstu skrefin á þeim vettvangi sumarið 2022, aðeins 16 ára. Þá lék hann fjóra landsleiki með U17 liði Íslands.

„Þá hefur Valdi verið lykilmaður í sterku 2. flokksliði KA en strákarnir urðu Íslandsmeistarar sumarið 2024 sem tryggði liðinu sæti í UEFA Youth League þar sem strákarnir slógu út FS Jelgava frá Lettlandi,“ segir í tilkynnningunni á vef KA. „Valdi átti virkilega góða leiki í einvíginu og var valinn maður leiksins í báðum leikjum liðanna en KA vann samanlagðan 3-2 sigur í einvíginu og gerði Valdi eitt mark auk þess að leggja upp sigurmark liðsins á Greifavellinum,“ segir í tilkynningunni á vef KA.

ʻŌhiʻa Lehua

Sigurður Arnarson skrifar
21. janúar 2026 | kl. 10:00

Vökustaurar

Jóhann Árelíuz skrifar
18. janúar 2026 | kl. 06:00

Runnkennt elri til landgræðslu - Seinni hluti: Tegundir

Sigurður Arnarson skrifar
14. janúar 2026 | kl. 09:45

Hreyfing – þegar gæði skipta meira máli en magn

Guðrún Arngrímsdóttir skrifar
13. janúar 2026 | kl. 06:00

Þekking

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
12. janúar 2026 | kl. 09:45

Lausnin 7/7

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
11. janúar 2026 | kl. 06:00