Fara í efni
Pistlar

Blak: KA-liðin í 2. sæti deildarinnar

HK-stelpurnar fagna deildarmeistaratitlinum eftir sigur gegn KA í gær. Mynd: volleyball.is/Þorsteinn Gunnar Guðnason.

Keppni í efstu deildum karla og kvenna í blaki, Unbroken-deildinni, lauk um helgina. HK varð deildarmeistari kvennamegin og Hamar hjá körlunum. Lið KA urðu í öðru sæti og í úrslitakeppninni sem er framundan mæta þau liðunum sem enduðu í 3. sæti. Kvennaliðið mætir Völsungi og karlarnir Aftureldingu en úrslitakeppnin hefst í apríl.

Kvennaliðið átti ennþá möguleika á að verja deildarmeistaratitilinn en liðið lék tvívegis gegn HK syðra um helgina. Svo fór að HK vann báða leikina, 3:2 í hörkuleik á laugardeginum og 3:1 á sunnudag. HK mætir Aftureldingu í úrslitakeppninni og KA glímir við Völsung. Sigurvegarar úr þessum viðureignum leika síðan um Íslandsmeistaratitilinn.

Í Unbroken-deild karla hafði Hamar þegar tryggt sér deildarmeistaratitilinn fyrir leiki helgarinnar. KA gerði það sem þurfti til að tryggja 2. sætið með tveimur sigrum gegn HK í Kópavogi. Báðir leikir unnust 3:1 og KA mætir Aftureldingu í undanúrslitunum. Hamar leikur gegn Þrótti úr Reykjavík og sigurvegar þessara viðureigna leika svo um Íslandsmeistaratitilinn.

Lokastaðan í Unbroken-deild kvenna

Lokastaðan í Unbroken-deild karla

Gróður á lóðarmörkum

Sigurður Arnarson skrifar
11. mars 2026 | kl. 10:30

Drepfyndin óvissuferð hjá Leikfélagi Hörgdæla

Rakel Hinriksdóttir skrifar
10. mars 2026 | kl. 11:00

Flækjum ekki hlutina

Guðrún Arngrímsdóttir skrifar
10. mars 2026 | kl. 06:00

Frostaveturinn 1918

Jóhann Árelíuz skrifar
08. mars 2026 | kl. 15:00

Börkur berst við kerfið

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
08. mars 2026 | kl. 13:30

Bræðrafell

Hjalti Jóhannesson skrifar
07. mars 2026 | kl. 06:00