Fara í efni
Pistlar

„Upplifun frekar en hefðbundin máltíð“

Teymið á bak við Majó; Ída Irene Oddsdóttir, Alexander Magnússon, Aðalsteinn Óli Magnússon og Magnús Magnússon. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Á nýopnuðum veitingastað Majó í Menningarhúsinu Hofi er boðið upp á nýjung sem ekki hefur áður sést á Akureyri. Á hverjum degi milli klukkan 18 og 19 er svokölluð „saké stund“ þar sem gestir geta kynnst japanska hrísgrjónavíninu. Saké stundin er strax á eftir hefðbundinni gleðistund („happy hour“) sem stendur yfir klukkustund áður.  „Okkur langar að kynna saké betur fyrir fólki. Við erum með margar tegundir og þetta er ný upplifun fyrir marga,“ segir Ída Irene Oddsdóttir, einn eigenda Majó.

Saké kemur á óvart

Saké er framreitt í litlum bollum en er þó ekki drukkið eins og skot, heldur sippa gestir á drykknum. Ída segir að bragðið komi mörgum á óvart. „Saké er oft milt og mjúkt, stundum lítillega sætt en einnig getur það verið þurrt og ferskt, með ávaxtakeim eða örlítið hnetukenndum undirtónum, það fer allt eftir tegundinni.” Drykkurinn er bruggaður úr hrísgrjónum, vatni, geri og sérstökum svepp (kōji) sem umbreytir sterkju hrísgrjónanna í sykur áður en hann gerjast. Ferlið líkist því að einhverju leyti bæði bjór- og vínframleiðslu. „Það eru svo margar mismunandi útgáfur í boði af saké að fólk finnur yfirleitt eitthvað sem því líkar,“ segir Ída.

Saké er japanskt hrísgrjónavín sem er borðið fram í litlum bollum. Því er ekki skellt í sig eins og skoti heldur sippa gestir rólega á drykknum. Á eftir hefðbundinni gleðistund (happy hour) er Saké stund hjá Majó milli kl. 18 og 19. Mynd: SNÆ

Ekki bara matur heldur líka upplifun

Majó opnaði nýverið í Hofi eftir 5 ár í „pop up“ rekstri með aðsetur í Laxdalshúsi. Að baki staðnum standa bræðurnir Magnús Jón og Alexander Magnússynir, ásamt Ídu, eiginkonu Alexanders, og Aðalsteini Óla sem er sonur Magnúsar. Hingað til hefur sushi verið í forgrunni hjá Majó en með opnuninni í Hofi hafa áherslurnar aðeins breyst og úrvalið breikkað.

„Við erum farin meira í svona izakaya-stíl,“ útskýrir Ída. „Það þýðir að réttirnir koma á borðið einn af öðrum þegar þeir eru tilbúnir og fólk er svolítið að deila og prófa sig áfram. Þetta er því meiri upplifun frekar en hefðbundin máltíð.“ Á matseðlinum má nú m.a. finna ramen, bao buns með fjölbreyttri fyllingu og japanskt mjólkurbrauð sem hefur vakið athygli gesta. Þá geta þeir sem vilja sest við barinn og fylgst með matargerðinni í beinni og séð hvernig kokkurinn útbýr sushið. 

Saké, sushi og sól. Ída og Alexander ætla að færa nýja stemningu í Hof. Hér eru þau fyrir framan veitingastaðinn en á góðviðrisdögum er útisvæðið einstakt. Mynd: SNÆ

Góðar viðtökur

Staðurinn var opnaður formlega í Hofi þann 17. apríl og segir Ída að viðtökurnar hafi farið fram úr öllum þeirra væntingum. „Þetta hefur gengið rosalega vel og miklu betur en við héldum,” segir Ída sem viðurkennir að það sé vissulega áskorun að fara úr því að vera með „pop up“ opnun tvisvar í mánuði í það að fara yfir í fastan veitingarekstur. „Við erum fjölskyldufyrirtæki og höfum verið að byggja Majó upp samhliða öðrum störfum síðustu ár en nú erum við loksins að fara eingöngu í þetta,“ segir Ída. Aðspurð hvernig það sé að vinna svona náið saman sem fjölskylda segir hún að það sé heilmikið púsl að láta vinnuna ganga upp í tengslum við ung börn og daglegt líf en samkomulagið á milli eigendanna sé gott. „Við kynntumst öll í veitingageiranum og erum vön að vinna saman, þannig að það gengur vel,“ segir Ída. Hún ítrekar að Majó sé ekki aðeins hugsaður sem veitingastaður heldur einnig sem staður þar sem fólk getur komið við á yfir daginn í kaffi, drykk eða bakkelsi. Útisvæðið fyrir framan veitingastaðinn hefur verið vinsælt undanfarið enda einstakt þegar vel viðrar. „Við erum að reyna að skapa upplifun, ekki bara selja mat og drykk og saké stundin er hluti af því,“ segir Ída að lokum spennt fyrir sumrinu og býður bæði ferðafólk og heimamenn velkomið á Majó í Hofi.

Majó er opið daglega milli kl. 11.30 og 19 en fimmtudaga, föstudaga og laugardaga er opið til klukkan 23. Lokað er á sunnudögum. Þessi opnunartími er a.m.k til að byrja með en á eftir að breytast í sumar. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Glímt við Selána

Jóhann Árelíuz skrifar
10. maí 2026 | kl. 06:00

Hús dagsins: Sæborg í Glerárþorpi

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
09. maí 2026 | kl. 06:00

Attenborough og trjávernd

Sigurður Arnarson skrifar
08. maí 2026 | kl. 21:00

Að bjarga heyi. Skáldin um landlæsi

Sigurður Arnarson skrifar
06. maí 2026 | kl. 18:00

Persónuleiki og fíkn

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
06. maí 2026 | kl. 06:00

Hversu vel hreyfist þú? Getur verið að þig vanti hreyfanleika?

Guðrún Arngrímsdóttir skrifar
05. maí 2026 | kl. 06:00