Fara í efni
Pistlar

Umfangsmikil æfing á flugvellinum í dag

Frá flugslysaæfingu á Akureyrarflugvelli árið 2022. Samskonar æfing verður haldin þar í dag. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Bæjarbúar hafa orðið varir við eitt og annað óvenjulegt á Akureyrarflugvelli undanfarna daga því búið er að koma fyrir gömlum bílum hér og þar á flugvallarsvæðinu og ýmsu öðru drasli ef að líkum lætur. Í dag verður heilmikið um að vera á vellinum, gera má ráð fyrir eldi, miklum reyk og mikilli umferð lögreglu-, sjúkra- og slökkviliðsbíla, björgunarsveita og starfsfólks Rauða krossins en ekkert er að óttast; ástæða þessa alls er umfangsmikil flugslysaæfing sem fer fram á milli klukkan 14 og 17. Æft verður „heildarferli aðgerða vegna flugslyss, með aðkomu helstu viðbragðsaðila innan sem utan flugvalarins. Settur verður upp slysavettvangur með: eldi, braki, förðuðum leikurum o.fl. til þess að skapa sem raunverulegastar aðstæður,“ segir í tilkynningu frá Isavia.

Frá æfingunni á Akureyrarflugvelli árið 2022. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Hafþyrnir - Hinn þyrnótti hestaljómi

Sigurður Arnarson skrifar
15. júlí 2026 | kl. 11:30

Hús dagsins: Sigtún; eldra íbúðarhús

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
14. júlí 2026 | kl. 09:00

Þarf sumarið að vera fullkomið?

Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar
14. júlí 2026 | kl. 06:00

Er hægt að spila fótbolta svona?

Orri Páll Ormarsson skrifar
10. júlí 2026 | kl. 11:00

Vínviður Vínlands hins góða

Sigurður Arnarson skrifar
08. júlí 2026 | kl. 10:00

Kreppuáll, fuglalíf og ástarglóð

Jóhann Árelíuz skrifar
05. júlí 2026 | kl. 06:00