Fara í efni
Pistlar

Þór/KA tekur á móti Stjörnunni í bikarnum

Arna Sif Ásgrímsdóttir og Hulda Hrund Arnarsdóttir í baráttu í deildarleik Þórs/KA og Stjörnunnar í liðinni viku, leik sem lauk með 2-2 jafntefli. Mynd: Sævar Geir Sigurjónsson.

Bikaræðið í fótboltanum heldur áfram og komið að 16 liða úrslitum hjá konunum. Meirihluta leikjanna var raðað á daginn í dag vegna anna fjölmiðlafólks í kringum kosningar og aðra viðburði. Þór/KA fékk heimaleik og tekur á móti Stjörnunni, í annað skiptið á rúmri viku því þessi sömu lið mættust á Akureyri í 3. umferð Bestu deildarinnar í liðinni viku.

  • Mjólkurbikarkeppni kvenna í knattspyrnu
    16 liða úrslit
    Þórsvöllurinn (VÍS-völlurinn - gervigras á Ásnum) kl. 18
    Þór/KA - Stjarnan

Bæði liðin eru að koma inn í bikarkeppnina í 16 liða úrslitunum, eins og reglan er með liðin í Bestu deildinni. Þór/KA fór lengra en Stjarnan í bikarkeppninni í fyrra, féll úr keppni í átta liða úrslitum, eftir tap á heimavelli fyrir FH, en Stjarnan féll út í 16 liða úrslitum þegar liðið tapaði fyrir Tindastóli á heimavelli.

Slakaðu á maður, þetta er bara Fúsi!

Orri Páll Ormarsson skrifar
15. maí 2026 | kl. 06:00

Lárheggur. Sígrænn, blómstrandi krúttrunni

Sigurður Arnarson skrifar
13. maí 2026 | kl. 09:30

Glímt við Selána

Jóhann Árelíuz skrifar
10. maí 2026 | kl. 06:00

Hús dagsins: Sæborg í Glerárþorpi

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
09. maí 2026 | kl. 06:00

Attenborough og trjávernd

Sigurður Arnarson skrifar
08. maí 2026 | kl. 21:00

Að bjarga heyi. Skáldin um landlæsi

Sigurður Arnarson skrifar
06. maí 2026 | kl. 18:00