Fara í efni
Pistlar

Skemmtilegir jólagestir hjá Pétri og Brandi

AF BÓKUM – 58

Starfsfólk Amtsbókasafnsins á Akureyri segir lesendum Akureyri.net alla þriðjudaga frá bók eða bókum. Það vekur vonandi athygli á bókakosti safnsins, þar sem af nógu er að taka, og glæðir áhuga sem flestra á bóklestri.
 

Í dag skrifar Dagný Davíðsdóttir_ _ _

Þar sem ég á þrjú börn les ég reglulega barnabækur líka. Þau sem eru 8 og 6 ára nenna enn að hlusta á mömmu lesa, hvort sem það eru skreyttar myndabækur eða eitthvað aðeins þyngra. Það er alltaf ljúft að lesa fyrir þau en aldrei eins dásamlegt eins og á aðventunni. Við erum að safna jólabókum fyrir börn og reynum að lesa nokkrar í viku á aðventunni. Í síðustu viku lásum við m.a. Jólagestir hjá Pétri, en krakkarnir þekkja Pétur og Brand vel og eru alltaf spennt að hlusta á bækurnar um þá. Bækurnar eru skrifaðar af Sven Nordqvist og gerast í sænskri sveit. Þar býr gamall maður sem heitir Pétur og kötturinn hans Brandur Grænar baunir, kallaður Brandur. Saman lenda þeir í allskyns ævintýrum á sveitabænum og oftar en ekki snúast þau eitthvað um hænurnar þeirra sem þeim þykir ósköp vænt um.
 

Í Jólagestum hjá Pétri lenda þeir félagar í smá slysi þegar þeir eru úti að undirbúa jólin á Þorláksmessu sem verður til þess að Pétur slasast og getur ekki haldið áfram að græja komandi jólahátíð. Þetta finnst Brandi auðvitað alveg fráleitt og trúir því að það komi engin jól fyrst það vantar jólatré, lútfisk og fleira. Pétur finnur nýjar leiðir til að gera jólalegt hjá þeim og svo fá þeir hvern gestinn á fætur öðrum sem hjálpa þeim að gera jólin dásamleg. Bókin fjallar um náungakærleik og hvernig líta má hlutina með öðrum augum.

Bækurnar um Pétur og Brand eru fyndnar og skemmtilegar að mati krakkana, með mörgum gamaldags orðum sem börnin spurja gjarnan út í en fyrst og fremst eru það myndskreytingarnar sem vekja mestan áhuga barnanna. Þær eru flóknar og það er mikið um að vera á hverri opnu, þú getur í raun alltaf fundið eitthvað nýtt því lengur sem þú horfir.

Við mælum með Jólagestum hjá Pétri um jólin - gleðileg jól!

Ferðin austur

Jóhann Árelíuz skrifar
22. febrúar 2026 | kl. 06:00

Smíði og flutningur gamla Lamba á Glerárdal árið 1975

Hjalti Jóhannesson skrifar
21. febrúar 2026 | kl. 06:00

Steinhættu að halda með Liverpool

Orri Páll Ormarsson skrifar
20. febrúar 2026 | kl. 11:00

Olga örmagnast

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
19. febrúar 2026 | kl. 09:30

Furðutré innan gagnviðarættar

Sigurður Arnarson skrifar
18. febrúar 2026 | kl. 10:00

Hús dagsins: Grundargata 5

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
18. febrúar 2026 | kl. 06:00