Sigríður Stefánsdóttir, fyrrverandi bæjarfulltrúi á Akureyri, var kjörin formaður Rauða krossins á Íslandi til næstu fjögurra ára á aðalfundi félagsins síðastliðinn laugardag. Sigríður var áður varaformaður en hefur verið starfandi formaður síðan um mitt síðasta ár er þáverandi formaður, Silja Bára Ómarsdóttir, lét af formennsku er hún tók við stöðu rektors Háskóla Íslands. Þá var Jón Ásgeirsson kjörinn varaformaður á fundinum. Hann hefur verið starfandi varaformaður frá því í júní í fyrra.
Fjögur viku úr stjórn, þau Ívar Kristinsson, Símon Friðrik Símonarson, Valgerður Bláklukka Fjölnisdóttir og Unnsteinn Ingason.
Töluverð endurnýjun varð í stjórninni; fjórir nýir aðalmenn voru kjörnir og einn varamaður.

Ný stjórn Rauða krossins á Íslandi eftir aðalfundinn á laugardaginn.
Ný stjórn Rauða krossins er þannig skipuð: Sigríður Stefánsdóttir formaður, Jón Ásgeirsson varaformaður, Arnbjörg Sveinsdóttir, Auðbjörg Brynja Bjarnadóttir, Herbert Eyjólfsson, Ingibjörg Ásta Bjarnadóttir, Magnea Gná Jóhannsdóttir, Ómar Valdimarsson, Óttarr Proppé, Sigurður Ólafsson og Silja Ingólfsdóttir. Varamenn eru Salvör Ísberg og Árni Jóhannsson.
Sjúkrabílar á endastöð?
„Félagið okkar er öflugt og stöndugt og er alltaf reiðubúið að laga sig að breyttum aðstæðum,“ sagði Sigríður Stefánsdóttir er hún fór yfir skýrslu stjórnar á aðalfundinum. „Við stöndum vörð um fólk þegar mest á reynir, bæði hér heima og víða um heim.“
Í erindinu kom hún m.a. inn á sjúkrabíla landsins en Rauði krossinn á og rekur allan sjúkrabílaflotann. „Á síðustu árum hafa mörg hundruð milljónir farið í endurnýjun flotans sem er þó ekki að fullu lokið,“ sagði formaðurinn um þetta verkefni sem hefur fylgt félaginu nánast frá stofnun. „Stjórn félagsins ræðir það reglulega hvort félagið nálgist endastöð í þessu verkefni. Mögulega nálgast sá tímapunktur að rétt sé að afhenda stjórnvöldum flotann, með sanngjörnu endurgjaldi þó. Við erum svo sannarlega tilbúin til samtals.“

Alma D. Möller heilbrigðisráðherra á aðalfundi Rauða krossins á laugardaginn.
„Stór og mikilvægur hlekkur“
„Það er ómetanlegt fyrir stjórnvöld og samfélagið að eiga félag eins og Rauða krossinn að þegar áföll dynja yfir. Rauði krossinn er stór og mikilvægur hlekkur okkar í almannavörnum,“ sagði Alma D. Möller heilbrigðisráðherra þegar hún ávarpaði aðalfundinn. „Stórt hlutverk Rauða krossins við stjórnvöld á sviði heilbrigðis- og neyðarvarna er okkur öllum afar verðmætt og ég vil þakka félaginu stuðning sinn við þau sem minnst mega sín í samfélaginu,“ sagði Alma enn fremur.