Fara í efni
Pistlar

Örlög ráðast og átök við Íslandsmeistara

Örlög þriggja liða í Bestu deild kvenna í knattspyrnu, þar á meðal Þórs/KA, ráðast í lokaumferð neðri hluta deildarinnar í dag þegar baráttan við að forðast fall nær hápunkti. Tvö af handboltaliðum Akureyrar verða líka í eldlínunni í dag, KA/Þór á heimavelli, en karlalið Þórs á útivelli, bæði gegn Íslandsmeistaraliðum Vals.

  • Þór/KA getur í kvöld tryggt áframhaldandi veru liðsins í Bestu deildinni með sigri á Víkingum þegar liðin mætast á heimavelli Víkings í lokaumferð neðri hluta deildarinnar. Tvö lið munu falla úr deildinni og fyrir lokaumferðina eru þrjú lið í hættu. Þór/KA og Víkingur eru með 22 stig, en Valur með 21 stig. Þór/KA sækir Víking heim á sama tíma og Fram tekur á móti Val. Fram hefur nú þegar tryggt áframhaldandi veru sína í deildinni. Segja má að leikur Þórs/KA og Víkings sé úrslitaleikur því það lið sem vinnur bjargar sér frá falli. Jafntefli gæti nægt Þór/KA ef Valur vinnur ekki Fram, þar sem markatala Þórs/KA er betri en hinna liðanna. En geri Þór/KA og Víkingur jafntefli myndu þau bæði falla ef Valur vinnur Fram. Það verða því væntanlega spennuþrungnar 90 mínútur hjá þessum fjórum liðum í kvöld.
  • KA/Þór tekur á móti Val, Íslandsmeisturum síðustu fjögurra ára í fjórðu umferð Olísdeildar kvenna í handbolta í kvöld. KA/Þór hefur átt erfitt uppdráttar í byrjun tímabilsins, hefur tapað fyrstu þremur leikjum sínum. Valur hefur hins vegar ekki byrjað eins vel og við mætti búast af meisturum síðasta tímabils, en liðið hefur unnið einn leik af fyrstu þremur.
  • Þórsarar eiga einnig í höggi við Íslandsmeistara Vals, en sá leikur er að Hlíðarenda. Valur er í 8. sæti deildarinnar, hefur unnið tvo af fyrstu fjórum leikjum sínum. Valsmenn töpuðu á heimavelli fyrir KA í síðustu umferð, en gerðu sér síðan lítið fyrir og kjöldrógu danskt lið í Evrópudeildinni nokkrum dögum síðar. Þórsarar töpuðu hins vegar fyrir Víkingi í síðustu umferð eftir að hafa unnið bæjarslaginn þar á undan.

Örlög liðanna í þremur neðstu sætum Bestu deildar kvenna munu ráðast í kvöld. Þór/KA, Víkingur og Valur berjast um eitt sæti í Bestu deildinni á næsta tímabili, en tvö þeirra munu falla og leika í Lengjudeildinni. Víkingur og Þór/KA mættust tvisvar í deildinni í sumar og unnust báðir leikirnir á útivelli. Víkingur vann 6-4 á Akureyri, en Þór/KA vann 3-0 í Víkinni.

  • Fótbolti
    Besta deild kvenna, neðri hluti
    Víkingsvöllur kl. 18
    Víkingur - Þór/KA

    Enn er beðið eftir fyrsta sigri KA/Þórs í Olísdeild kvenna. Tekst þeim að vinna Íslandsmeistarana á heimavelli? Valur tapaði fyrir Haukum í Hafnarfirðinum í þriðju umferðinni og KA/Þór tapaði fyrir ÍR.
  • Handbolti
    Olísdeild kvenna, 4. umferð
    KA-heimilið kl. 18
    KA/Þór - Valur

    Tekst Þórsurum að snúa við taflinu eftir tap í síðustu umferð, feta í fótspor grannanna og vinna Íslandsmeistarana á útivelli? Verða Valsmenn áfram á flugi eftir glæsilegan sigur í Evrópudeildinni? 
  • Handbolti
    Olísdeild karla, 5. umferð
    Valsheimilið (N1 höllin að Hlíðarenda) kl. 18:30
    Valur - Þór

Nánasta fjölskylda birkis

Sigurður Arnarson skrifar
30. september 2026 | kl. 12:30

Hús dagsins: Norðurgata 16

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
29. september 2026 | kl. 20:00

Að hverfa til einfaldleikans

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
26. september 2026 | kl. 06:00

Notkun og mikilvægi hafþyrnis

Sigurður Arnarson skrifar
23. september 2026 | kl. 11:20

Þurfum við alltaf að vera að verða betri?

Guðrún Arngrímsdóttir skrifar
22. september 2026 | kl. 06:00

Neita að troða nikku í kokið

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
19. september 2026 | kl. 06:00