Fara í efni
Pistlar

Lið Þórs/KA/VDK Íslandsmeistari U16

Ásta Ninna Reynisdóttir, fyrirliði liðs 3. flokks Þórs/KA/VDK, lyftir Íslandsmeistarabikarnum að loknum sigri í 3. lotu A-deildar í gær. Mynd: Sævar Geir Sigurjónsson.

Þriðji flokkur sameiginlegs liðs sem keppir undir merkjum Þórs/KA/VDK, þar sem VDK sendur fyrir Völsung, Dalvík/Reyni og KF, tryggði sér í gær sigur í lotu 3 í A-deild Íslandsmótsins og þar með Íslandsmeistaratitilinn með 4-0 sigri á Val í lokaleik sínum í mótinu. Auður Ósk Kristjánsdóttir skoraði tvö mörk í gær, Ísabella Anna Kjartansdóttir og Hafdís Nína Elmarsdóttir eitt hvor.

Áður en kom að þriðju lotunni hafði Þór/KA/VDK lent í 2. sæti í fyrstu lotunni í vor, síðan í 4. sæti í 2. lotu um mitt sumar, en náði svo góðum lokakafla á sumrinu og vann þriðju lotuna þar sem liðið vann sex leiki af sjö og endaði í efsta sætinu með 18 stig. Liðið er einnig komið í undanúrslitaleik bikarkeppni 3. flokks og mætir Breiðabliki/Augnabliki á útivelli 30. september.

Þjálfarar U16 liða Þórs/KA/VDK eru þeir Anton Orri Sigurbjörnsson og Þórólfur Sveinsson. Nánar er fjallað um Íslandsmeistaratitilinn á vef félagsins, thorka.is.

Aftari röð frá vinstri: Anton Orri Sigurbjörnsson þjálfari, Harpa Karen Karlsdóttir, Emilía Ósk Birkisdóttir, Ásta Ninna Reynisdóttir fyrirliði, París Hólm Jónsdóttir, Arna Lind Jóhannsdóttir, Hafdís Nína Elmarsdóttir, Þóra Margrét Guðmundsdóttir, Auður Ósk Kristjánsdóttir, Ísabella Anna Kjartansdóttir, Guðný Helga Geirsdóttir og Þórólfur Sveinsson þjálfari. Fremri röð frá vinsti: Fanney Mjöll Arnarsdóttir, Kolfinna Kara Helgadóttir, Guðrún Lára Atladóttir, Halldóra Ósk Gunnlaugsdóttir Briem, Sigyn Elmarsdóttir, Manda María Jóhannsdóttir, Emma Júlía Cariglia og Bríet Sara Níelsdóttir. Ljósmyndari: Sævar Geir Sigurjónsson.

Að hverfa til einfaldleikans

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
26. september 2026 | kl. 06:00

Notkun og mikilvægi hafþyrnis

Sigurður Arnarson skrifar
23. september 2026 | kl. 11:20

Þurfum við alltaf að vera að verða betri?

Guðrún Arngrímsdóttir skrifar
22. september 2026 | kl. 06:00

Neita að troða nikku í kokið

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
19. september 2026 | kl. 06:00

Takk fyrir mig, Akureyri!

Orri Páll Ormarsson skrifar
18. september 2026 | kl. 12:00

Þröngsýni, sjúkdómur hinna

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
16. september 2026 | kl. 20:00