Fara í efni
Pistlar

Jón Þór Kristjánsson ráðinn til Samherja

Jón Þór Kristjánsson hefur verið ráðinn verkefnastjóri upplýsingamiðlunar hjá Samherja. Síðustu árinu hefur hann starfað hjá Akureyrarbæ, fyrst sem verkefnastjóri upplýsingamiðlunar en síðan sem forstöðumaður þjónustu og þróunar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samherja.

Jón Þór er með BA í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands og með meistaragráðu í opinberri stefnumótun frá Edinborgarháskóla. Hann starfaði í nokkur ár við fjölmiðlun; var fréttamaður hjá Viðskiptablaðinu, N4 og RÚV. 

Mörg verkefni í farvatninu

„Hjá Samherja starfar samheldin áhöfn, sem hefur átt stóran þátt í að þróa með markvissum hætti þetta framsækna og tæknivædda fyrirtæki. Félagið er vel búið, hvort sem við erum að tala um glæsilegan skipaflota, tæknivæddar landvinnslur, landeldi eða öfluga sölu- og dreifingu afurða og greinilega valinn maður í hverju rúmi,“ segir Jón Þór á vef Samherja.

„Ég er fullur tilhlökkunar að taka þátt í starfseminni enda mörg spennandi verkefni í undirbúningi innan félagsins sem kalla á markvissa miðlun og samskipti,“ segir Jón Þór.

Mikil áhersla á upplýsingamiðlun

Karl Eskil Pálsson hefur undanfarin ár sinnt upplýsingamiðlun Samherja. Hann lætur af störfum um mánaðamótin vegna aldurs.

„Það skiptir okkur miklu máli að standa vel að upplýsingamiðlun og varpa þannig ljósi á fjölbreytta starfsemi fyrirtækisins. Undanfarin ár hefur náðst góður árangur á þessu sviði og tekist að byggja upp fleiri leiðir til að miðla upplýsingum til landsmanna og eiga í samskiptum við þau samfélög þar sem við störfum. Karl Eskil hefur gegnt lykilhlutverki og leitt vinnu við að styrkja upplýsingamiðlun Samherja. Ég vil þakka honum fyrir gott samstarf og mikilvægt framlag, um leið og ég býð Jón Þór velkominn til starfa,“ segir Baldvin Þorsteinsson, forstjóri Samherja, í tilkynningunni á vef fyrirtækisins.

Akureyrin í Þorvaldi

Hjörleifur Hjartarson skrifar
09. nóvember 2026 | kl. 17:30

Hús dagsins: Hafnarstræti 67; Skjaldborg

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
08. nóvember 2026 | kl. 06:00

Hraunfellsbræður

Jóhann Árelíuz skrifar
08. nóvember 2026 | kl. 06:00

Birkið í Trjáræktarstöðinni afhjúpað – Haustið kjaftar frá

Helgi Þórsson skrifar
04. nóvember 2026 | kl. 10:00

Djúpslökun og töfrar Jóga Nidra

Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar
03. nóvember 2026 | kl. 06:00

Afi og amma á Hraunfelli

Jóhann Árelíuz skrifar
01. nóvember 2026 | kl. 06:00