Íshokkíhelgi heima og að heiman
Íshokkíið verður í aðalhlutverki á íþróttasviði akureyrskra liða í dag og á morgun. SA Víkingar, karlaliðið í íshokkíinu, spila tvo leiki í Toppdeildinni, báða gegn úrvali U20 landsliðsins. Kvennaliðið tekur þátt í fjögurra liða móti, Atlantic Cup, sem fram fer í Skautahöllinni í Laugardal.
- Báðir karlaleikirnir fara fram í Skautahöllinni á Akureyri, sá fyrri í dag, laugardag, kl. 16:45, og sá seinni á sama tíma á morgun Fyrirkomulagið í Toppdeild karla í íshokkí er dálítið sérstakt, eins og rakið var í upphitun akureyri.net fyrir fyrsta leik SA Víkinga. Fjórða liðið í mótinu er skipað U20 landsliðsmönnum frá félögunum þremur, mismunandi eftir því hver andstæðingurinn er.
-
Kvennalið SA í íshokkí tekur þátt í fjögurra liða hraðmóti um komandi helgi. Mótið er samstarfsverkefni Íshokkísambands Íslands og Íshokkísambands Írlands og er hluti af verkefni sem Alþjóða íshokkísambandið, IIHF, stendur að. Fyrsta umferð mótsins fór fram í gærkvöld, en SA mætir liði Fjölnis í dag og svo írska landsliðinu á morgun. Fyrsta umferð mótsins fór fram í gær. SA vann SR með gullmarki í framlengingu, 3-2. Fjölnir vann írska landsliðið sömuleiðis 3-2.

LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER - íshokkí
Tveir hokkíleikir í boði í Skautahöllinni á Akureyri um helgina, SA Víkingar gegn U20 liðinu sem er fjórða lið Toppdeildarinnar. Sá fyrri er á dagskrá í dag.
- Íshokkí
Toppdeild karla
Skautahöllin á Akureyri kl. 16:45
U20 - SA
Önnur umferð Atlantic Cup. Hinn leikur dagsins er viðureign SR og írska landsliðsins sem hefst kl. 20.
- Íshokkí
Atlantic Cup, 2. umferð
Skautahöllin í Laugardal kl. 16:45
Fjölnir - SA
SUNNUDAGUR 27. SEPTEMBER - íshokkí
Seinni leikur SA Víkinga og U20 liðsins í Toppdeild karla í íshokkí á dagskrá síðdegis.
- Íshokkí
Toppdeild karla
Skautahöllin á Akureyri kl. 16:45
SA - U20
Lokaumferð Atlantic Cup. Hinn leikur dagsins er viðureign Reykjavíkurliðanna, Fjölnis og SR, sem hefst kl. 20.
- Íshokkí
Atlantic Cup, 3. umferð
Skautahöllin í Laugardal kl. 16:45
SA - Írland
Notkun og mikilvægi hafþyrnis
Þurfum við alltaf að vera að verða betri?
Neita að troða nikku í kokið
Takk fyrir mig, Akureyri!