„Þetta byggir allt á vinnuframlaginu“
Einn Íslandsmeistaratitill meistaraflokks karla á síðustu fjórum árum er ekki það sem íshokkísamfélagið á Akureyri hefur átt að venjast í gegnum tíðina. Stefnan er þó að sjálfsögðu alltaf á að vinna þá titla sem eru í boði hverju sinni, það breytist ekkert þó keppinautarnir hafi gert sig meira gildandi á undanförnum árum.

Andri Már Mikaelsson var fyrirliði SA Víkinga síðast þegar þeir unnu Íslandsmeistaratitilinn í apríl 2025. Andri Már verður ekki með liðinu núna í upphafi móts, er í hléi vegna meiðsla. Mynd: Rakel Hinriksdóttir.
SA Víkingar, karlalið SA, hefur leik með heimsókn í Grafarvoginn í dag, þar sem þeir mæta liði Fjölnis. Allnokkrar breytingar hafa orðið á liði SA frá síðasta tímabili, tveir erlendir leikmenn farnir aftur til síns heima og þrír heimamenn, Bjarmi Kristjánsson, Ólafur Baldvin Björgvinsson og Uni Steinn Sigurðarson Blöndal, hafa haldið á vit nýrra ævintýra erlendis.
Býr mikið í liðinu
Nýr þjálfari er tekinn við liðinu, eins og fram kom í upphitun okkar fyrir fyrsta leik kvennaliðsins. Emil Alengård þjáflar bæði meistaraflokksliðin og U18 lið félagsins.

Emil Alengård, nýr þjálfari meistaraflokksliða og U18 liðs SA. Mynd: Haraldur Ingólfsson.
Emil segir mikla möguleika búa í liði SA Víkinga, liði sem fer nánast alltaf í úrslitaviðureignirnar, en náði ekki að landa titlinum í fyrra og hefur unnið hann einu sinni á síðustu fjórum árum. Þar hafi vantað upp á að ná að klára verkefnið. Liðið er hins vegar með góða lykilleikmenn að hans mati og hans hlutverk sé að styðja þá til að spila enn betur og stíga upp þegar það skiptir mestu máli. „Það er alvöru séns, en við þurfum góða stemningu og góðan anda til að halda út,“ segir Emil um væntingar til karlaliðsins. Upphaf tímabilsins gefi mönnum smá innspýtingu með nýjum þjálfara, nýjum leikmönnum, fljótlega komi síðan rútína á hlutina, en það kosti mikinn sjálfsaga að halda út í gegnum tímabilið. „Við getum enn þróað okkur og orðið betra lið,“ segir Emil.
Ákafi og pressa
Spurður um leikstíl segir Emil að alltaf verði að horfa á hvaða hóp þjálfarinn hefur. En hann nefnir sérstaklega einkenni á liðum SA í gegnum árin, að þegar liðið er ekki með pökkinn vill það spila af ákafa, pressa og vinna hann hratt til baka. „Við erum ekki lið sem bara horfir og bíður, við viljum vinna saman í pressu og berjast fyrir því að vinna pökkinn til baka. Þegar við erum með pökkinn viljum við stjórna leiknum, eins og eðlilegt er þegar lið hefur pökkinn,“ segir Emil.

Gunnar Aðalgeir Arason er komin aftur heim í raðir SA eftir dvöl og spilamennsku í Hollandi í fyrra. Hér er hann í þriðja leik úrslitaeinvígisins gegn SR í apríl 2025, þegar SA vann einvígið 3-0. Mynd: Rakel Hinriksdóttir.
„Ég vil líka byggja upp meira af kerfum þegar við erum með pökkinn, hvernig við getum spilað sóknina saman, allir koma við sögu, ekki bara þrír sóknarmenn. Alveg eins í vörninni, allir vinna saman. Þetta byggir allt á vinnuframlaginu, það er númer eitt. Það er eitthvað sem ég set á alla leikmenn, framlagið verður að vera til staðar. Ég get ekki byrjað að vinna í smáatriðunum ef vinnan á bakvið er ekki til staðar.“
Fjögurra liða reglan og U20
Til þess að Ísland fái þátttökurétt í Heimsmeistaramótum er Toppdeild karla og Íshokkísambandið undir það sett samkvæmt reglum Alþjóða íshokkísambandsins, IIHF, að í deildinni spili að lágmarki fjögur lið. Á undanförnum árum hefur stundum þurft hugmyndaauðgi til að uppfylla það formsatriði.
Núna eru þrjú raunveruleg félagslið í deildinni, SA, SR og Fjölnir. Fjórða liðið sem tekur þátt í vetur er skipað landsliðsmönnum U20. Þátttaka þess hefur þó raunar tvíþættan tilgang, því auk þess að uppfylla skilyrði IIHF um fjögurra liða deild gefst U20 landsliðinu tækifæri á að spila meira saman en verið hefur áður en liðið heldur í landsliðsverkefni í janúar.

SA á nóg af ungum hokkíleikmönnum og margir þeirra munu spila leiki með U20 landsliðinu í Toppdeildinni í vetur. Hér er lið Jötna, U22 liðs SA, eftir að liðið vann Íslandsmeistaratitil U22 í vor.
Þjálfarar U20 landsliðsins geta því valið leikmenn úr öllum félögunum í sína leiki, en þó með þeim takmörkunum að félagsliðið sem þeir mæta hverju sinni tilkynnir fyrst sinn leikmannahóp. Um aðra helgi mæta SA Víkingar U20 liðinu í tvígang. U20 landsliðmenn úr röðum SA munu því væntanlega spila marga leiki þegar liðið mætir Reykjavíkurfélögunum.
Leikmenn frá SA sem eru í hópi U20 og munu því margir hverjir spila bæði með SA Víkingum og U20 liðinu í Toppdeildinni: Alex Máni Ingason, Aron Freyr Gautason, Aron Ingason, Bjarki Jóhannsson, Bjartur Westin, Brynjar Örn Ólafsson, Elvar Ingi Sigurðsson, Elvar Skúlason, Finnur Bessi Finsson, Fjölnir Sigurjónsson, Hrannar Sigurðsson, Jón Magnússon, Mikael Eiríksson, Sölvi Blöndal og Stefán Guðnason.
Þess má einnig geta að í vetur verða þrjár svokallaðar ofurhelgar í Toppdeild karla og ein í Toppdeild kvenna, eins og í fyrra. Þá mætast öll þrjú liðin einu sinni sömu helgina, á föstudegi, laugardegi og sunnudegi. Í Toppdeild karla verður ein ofurhelgi í hverri höll.
Meistaraflokkur SA Víkinga
- Markverðir
Jakob Ernfelt Jóhannesson
Róbert Andri Steingrímsson - Varnarmenn
Agnar Dan Agnarsson
Aron Gunnar Ingason
Atli Þór Sveinsson
Daníel Snær Ryan
Elvar Örn Skúlason
Gabríel Snær Benjamínsson
Gunnar Aðalgeir Arason
Ingvar Þór Jónsson
Sigurður Freyr Þorsteinsson
Ormur Karl Jónsson - Sóknarmenn
Alex Máni Ingason
Arnar Helgi Kristjánsson
Aron Freyr Gautason
Baltasar Ari Hjálmarsson
Bjarki Þór Jóhannsson
Bjartur Westin
Hafþór Andri Sigrúnarson
Heiðar Gauti Jóhannsson
Jóhann Már Leifsson
Matthías Már Stefánsson
Mikael Darri Eiríksson
Pétur Elvar Sigurðsson
Unnar Hafberg Rúnarsson
- Komnir
Gunnar Aðalgeir Arason (From GIJS Groningen) - Farnir
Andri Már Mikaelsson í hléi vegna meiðsla
Bjarmi Kristjánsson til Vojens í Danmörku
Dagur Freyr Jónasson hættur
Marek Vybostok til Slóvakíu
Orri Blöndal í pásu
Ólafur Baldvin Björgvinsson til Esbjerg í Danmörku
Robbe Delport til Chiefs Leuven í Belgíu
Uni Steinn Sigurðarson Blöndal til Danbury Hat Tricks í Bandaríkjunum
Takk fyrir mig, Akureyri!
Þröngsýni, sjúkdómur hinna
Ættkvísl hlyntrjáa
Að endurtaka endurtekna þætti