Fara í efni
Pistlar

Mikilvægur heimaleikur – þrjú lið leika syðra

Fjörugur dagur fram undan hjá íþróttafólkinu okkar. Eini leikur dagsins á Akureyri er gríðarlega mikilvægur fyrir lið Þórs/KA í Bestu deild kvenna. Karlaliðin í handboltanum eiga bæði útileik og konurnar í íshokkíinu hefja leik í fjögurra liða móti, Atlantic Cup, í Reykjavík í kvöld.

  • Þór/KA berst áfram fyrir lífi sínu í Bestu deild kvenna í knattspyrnu, en liðið bætti þremur dýrmætum stigum í pokann á laugardag með sigri á Val á útivelli. Í dag er komið að næstsíðustu umferð tímabilsins í neðri hluta deildarinnar og síðasta heimaleik Þórs/KA. Félagið hefur auglýst að frítt verði á leikinn í boði Bílaleigu Akureyrar og Grand þvottar ehf. Keppnin í neðri hlutanum er gríðarlega jöfn og spennandi; Fram með 23 stig, Þór/KA 22 stig, Víkingur 21 stig og Valur 20 stig þegar tveimur umferðum er ólokið. Á sama tíma og leikur Þórs/KA og Fram fer fram mætast Valur og Víkingur.
  • Eftir æsispennandi bæjarslag í liðinni viku er komið að útileik hjá báðum Akureyrarliðunum í Olísdeild karla í handboltanum. Þau eru jöfn að stigum að loknum þremur umferðum, hafa bæði unnið tvo leiki og sitja í 4. og 5. sæti deildarinnar. Þór sækir Víking heim í kvöld, en KA sækir Val heim að Hlíðarenda. Eftir úrslit leikja í fjórðu umferðinni sem fram fóru í gær eiga bæði Þór og KA kost á því að koma sér upp í 2. sætið með sigri í kvöld.
  • Kvennalið SA í íshokkí tekur þátt í fjögurra liða hraðmóti um helgina og hefur leik í kvöld. Mótið er samstarfsverkefni Íshokkísambands Íslands og Íshokkísambands Írlands og er hluti af verkefni sem Alþjóða íshokkísambandið, IIHF, stendur að. Verkefnið gengur út á að þjóðir sem eru hærra á heimslistanum aðstoða þær þjóðir sem eru neðar eða jafnvel ekki á heimslistanum, eins og í tilfelli Írlands. Að sögn Helga Páls Þórissonar, forseta ÍHÍ, hafa þessi sérsambönd lengi ætlað sér að gera eitthvað saman og segir hann þetta mót viðleitni til þess. Ef vel tekst til má jafnvel búast við því að það verði endurtekið að ári. Þátttakendur í mótinu eru íslensku félagsliðin, SA, SR og Fjölnir, ásamt írska landsliðinu. Leikið er kvöld, á morgun og sunnudag í Skautahöllinni í Laugardal.


Frítt inn, auglýsir stjórn Þórs/KA fyrir leik dagsins í fótboltanum. Þrjú mikilvæg stig í boði í neðri hluta Bestu deildarinnar, síðasti heimaleikur liðsins á þessu tímabili þegar Þór/KA tekur á móti Fram.

  • Fótbolti
    Besta deild kvenna, neðri hluti
    Þórsvöllur (VÍS-völlurinn, gervigrasvöllur á Ásnum) kl. 18
    Þór/KA - Fram

Handboltinn heldur áfram eftir bæjarslaginn, útileikur hjá báðum Akureyrarliðunum í Olísdeild karla.

  • Handbolti
    Olísdeild karla, 4. umferð
    Virkið í Safamýri kl. 19
    Víkingur - Þór

  • Handbolti
    Olísdeild karla, 4. umferð
    N1 höllin að Hlíðarenda kl. 19:30
    Valur - KA

Atlantic Cup, fjögurra liða íshokkímót kvenna, hefst í kvöld með þátttöku SA, SR, Fjölnis og írsla landsliðsins. SA mætir SR í kvöld. Hinn leikur dagsins er viðureign Fjölnis og írska landsliðsins sem hefst kl. 18:45.

  • Íshokkí
    Atlantic Cup, 1. umferð
    Skautahöllin í Laugardal kl. 21:00
    SA - SR

Notkun og mikilvægi hafþyrnis

Sigurður Arnarson skrifar
23. september 2026 | kl. 11:20

Þurfum við alltaf að vera að verða betri?

Guðrún Arngrímsdóttir skrifar
22. september 2026 | kl. 06:00

Neita að troða nikku í kokið

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
19. september 2026 | kl. 06:00

Takk fyrir mig, Akureyri!

Orri Páll Ormarsson skrifar
18. september 2026 | kl. 12:00

Þröngsýni, sjúkdómur hinna

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
16. september 2026 | kl. 20:00

Ættkvísl hlyntrjáa

Sigurður Arnarson skrifar
16. september 2026 | kl. 10:30