Fara í efni
Pistlar

Guðni Th. kynnir bók um þorskastríðin

Guðni Th. Jóhannesson, prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands og fyrrverandi forseti Íslands, kynnir nýja bók sína, Vald hinna veiku, á Minjasafninu á Akureyri í dag, laugardaginn 3. október klukkan 13. „Sögustund fyrir forvitið og fróðleiksfúst fólk,“ eins og segir á vef Minjasafnsins.

Í bókinni fjallar Guðni um þorskastríðin og baráttuna um íslenska landhelgi, tímabil sem einkenndist af hörðum átökum bæði á hafi og í stjórnmálum. Þar segir meðal annars frá togvíraklippingum Landhelgisgæslunnar, deilum við breska togara og afskiptum breska flotans.

Jafnframt er fjallað um deilurnar hér heima, þar sem ólík sjónarmið tókust á um hvernig Íslendingar ættu að bregðast við. Sumir vildu semja og leita málamiðlana en aðrir töldu slíkt vera undanhald og svik við rétt landsins.

Guðni fjallar einnig um viðbrögð erlendis, meðal annars í Bretlandi, þar sem íslensk stjórnvöld sættu gagnrýni fyrir afstöðu sína og aðferðir í deilunni. Í kynningu á bókinni segir að sjaldan hafi jafn mikið gengið á í samtímasögu Íslands og á þessum átakaárum.

Á vef Minjasafnsins segir að Vald hinna veiku sé efnismikið rit og ríkulega myndskreytt. Frásögnin sé æsileg og litríkir kappar eigist við. Bókin verður til sölu á sérstöku tilboðsverði á viðburðinum og Guðni mun árita eintök sé þess óskað.

Birkið í Trjáræktarstöðinni afhjúpað - Haustið kjaftar frá

Helgi Þórsson skrifar
04. nóvember 2026 | kl. 10:00

Djúpslökun og töfrar Jóga Nidra

Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar
03. nóvember 2026 | kl. 06:00

Afi og amma á Hraunfelli

Jóhann Árelíuz skrifar
01. nóvember 2026 | kl. 06:00

Elrið og þjóðsögurnar

Sigurður Arnarson skrifar
28. október 2026 | kl. 15:30

Mannúðarlánastefna og biksvartur húmor

Rakel Hinriksdóttir skrifar
28. október 2026 | kl. 06:00

Hús dagsins: Hríseyjargata 6

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
28. október 2026 | kl. 01:30