Fara í efni
Pistlar

Gerir söguna betri að byrja illa en vinna samt

Oddur Gretarsson, til hægri, og Daninn öflugi Bertram Simonsen, sem er lykilmaður hjá Þór en fékk rautt spjald og lék ekki síðustu 20 mínúturnar í kvöld. Mynd: Skapti Hallgrímsson

„Þetta eru lang skemmtilegustu leikirnir og eitt af því sem fær mann til að vilja halda áfram að spila þennan leik,“ sagði Oddur Gretarsson, Þórsarinn reyndi og fyrrverandi atvinnu- og landsliðsmaður, við akureyri.net eftir sætan sigur Þórsara á KA, 35-31, í úrvalsdeild karla í handbolta í KA-heimilinu í kvöld.

„Það var eins og það væri sviðsskrekkur hjá okkur í byrjun, við tókum léleg skot og lélegar ákvarðanir, tókum ekki þau hlaup sem við vildum taka. En þegar við fundum það þá fannst mér við vera betri aðilinn í leiknum. Við tókum leikhlé og að því loknu fannst mér við mæta til leiks. Full seint að mínu mati en það gerir söguna bara betri að við vorum fimm mörkum undir í byrjun hérna í KA-heimilinu og unnum samt,” sagði Oddur sem skoraði afar mikilvægt mark og átti stoðsendingu í kjölfarið undir lok leiksins þegar Þórsarar tryggðu sér sigurinn í jöfnum leik með því að skora fjögur síðustu mörkin.“ 

Bestu leikir á Íslandi

Þetta var bara stál í stál allan leikinn eftir að þið jöfnuðuð metin.

Já, þannig eru þessir leikir. Að koma heim úr atvinnumennskunni og fá að taka þátt í þessum leikjum er frábært. Þetta eru bestu leikir sem þú finnur á Íslandi, leikirnir á milli Þórs og KA. Maður er vanur ýmsu en þetta er eitthvað öðruvísi, sérstaklega fyrir Þórshjartað og stoltið.

Að horfa á stúkuna og sjá áhorfendur taka þátt í þessu með okkur. Við sýndum frábæran karakter og það er ógeðslega gaman að spila þessa leiki. Ég vil hrósa umgjörðinni hjá KA og hversu geggjaðir leikir þetta eru búnir að vera þessi síðustu tvö ár.

Hefur breyst með Dönunum

Þið misstuð Simonsen af velli með rautt spjald snemma í seinni hálfleik og þá virtust hlutirnir vera að falla með KA á ný. Hvernig skynjaðir þú það?

Ég viðurkenni að það fór aðeins um mig þegar við misstum hann út af. Hann er mjög mikilvægur fyrir okkur í vörn og sókn en það sem er öðruvísi hjá okkur núna en í fyrra er að við erum með mun meiri breidd í hópnum. Það kemur maður í manns stað. Þetta gerðist líka í síðasta leik, þá fékk Brynjar rautt spjald eftir tíu mínútur en þetta hefur breyst með því að fá Danina til liðs við okkur.

Við vildum breikka hópinn og verða samkeppnishæfari. Þessir dönsku strákar eru ekki komnir hingað til að leika sér. Þetta eru gæjar sem vilja ná langt í handboltanum og eru mættir hingað til að taka skref á sínum ferli, prófa eitthvað öðruvísi, og það hefur sýnt sig að það eru möguleikar á að sýna sig og sanna í þessari deild. Við framleiðum atvinnumenn, fullt af þeim, og Danirnir sjá það væntanlega. Þetta eru flottir karakterar, bæði innan vallar og utan, og við erum mjög ánægðir með þá, og allan hópinn.

Ungu strákarnir og allir heimamennirnir standa sig vel og það er heiður að fá að taka þátt í þessu. Í kvöld eru þetta samt bara tvö stig, þó mótherjinn hafi verið KA. Við viljum meira og tökum bara einn leik í einu.

Þetta er fínasta byrjun

Fjögur stig í byrjun móts, þið hljótið að vera sáttir við það?

„Já, það er fínasta byrjun, við verðum að vera ánægðir með það, og núna er bara að halda áfram. Mótið er nýbyrjað en er strax orðið ógeðslega gaman.“

Ertu búinn að tékka á dagsetningunni á seinni leiknum við KA?

„Já, það styttist í hann, ég held að hann sé bara einhvern tíma í nóvember! Það verður ekkert nema gaman, þetta eru lang skemmtilegustu leikirnir og eitt af því sem fær mann til að halda áfram að vilja spila þennan leik.“

Strákarnir kenna mér nýju stöðuna

Og þú spilar núna sjálfur aðra stöðu en áður, þú ert ekki að þeytast fram og aftur hornanna á milli eins og þú gerðir. Það hljóta að vera viðbrigði?

„Þegar ég fékk smjörþefinn af því að spila fyrir utan varð ekki aftur snúið. Við erum með flotta hornamenn og núna er ég að læra eitthvað nýtt á hverjum degi. Ég læt yngri strákana kenna mér hlaupin og hvernig maður á að spila þetta í sókninni og það er gaman að vera meira með boltann en áður. Ég gæti ekki verið sáttari við það á mínum síðustu árum í boltanum að upplifa drauminn um að spila fyrir utan!“

Gretarsson

Ein krefjandi spurning í lokin – hvort ertu Grétarsson eða Gretarsson? Þetta hefur verið sitt á hvað í íslenskum fjölmiðlum allan þinn feril!

„Það er Gretar með E. Pabbi heitir Grétar en ég er fæddur í Danmörku og þar vildu menn hafa þetta Gretarsson. Fæðingarvottorðið sýnir þetta, svo ekki verður um villst,“ sagði Oddur Gretarsson brosandi og þar með er það loksins á hreinu.

Þröngsýni, sjúkdómur hinna

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
16. september 2026 | kl. 20:00

Ættkvísl hlyntrjáa

Sigurður Arnarson skrifar
16. september 2026 | kl. 10:30

Að endurtaka endurtekna þætti

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
12. september 2026 | kl. 09:00

Ilmbirki heima og erlendis

Sigurður Arnarson skrifar
09. september 2026 | kl. 09:00

Hvernig hefurðu það, í alvöru?

Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar
08. september 2026 | kl. 06:00

Hús dagsins: Knarrarberg

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
07. september 2026 | kl. 02:00