Fara í efni
Pistlar

Fyrsta lína SA Víkinga sá um Fjölnismenn

Hafþór Andri Sigrúnarson skoraði tvö mörk og átti tvær stoðsendingar í stórsigri SA á Fjölni í gærkvöld. Mynd: Skapti Hallgrímsson.

Karlalið Skautafélags Akureyrar, SA Víkingar, átti ekki í neinum vandræðum með lið Fjölnis þegar liðin mættust í Egilshöllinni í gærkvöld. Lokatölur urðu 8-0, SA Víkingum í vil. 

Um leikinn er ef til vill ekki mikið að segja, úrslitin bera vitni um yfirburði SA sem átti 45 skot á mark á móti 12 skotum heimamanna. Segja má að fyrsta lína SA hafi meira og minna séð um sigurinn, Hafþór Andri með tvö mörk og þeir Andri Már, Hank, Jóhann Már og Orri með eitt hver samtals sex af átta mörkum liðsins. Þessir fimm að auki með 12 stoðsendingar.

Fjölnir - SA 0-8 (0-3, 0-1, 0-4)

  • 0-1 - Matthías Stefánsson (11:00). Stoðsendingar: Heiðar Gauti Jóhannsson, Bjarmi Kristjánsson.
  • 0-2 - Hafþór Andri Sigrúnarson (15:09). Stoðsendingar: Jóhann Már Leifsson, Andri Már Mikaelsson.
  • 0-3 - Andri Már Mikaelsson (19:32). Stoðsendingar: Hafþór Andri Sigrúnarson, Hank Nagel.
    - - -
  • 0-4 - Hafþór Andri Sigrúnarson (36:23). Stoðsendingar: Andri Már Mikaelsson, Orri Blöndal.
    - - -
  • 0-5 - Ormur Jónsson (45:38). Stoðsending: Hafþór Andri Sigrúnarson.
  • 0-6 - Jóhann Már Leifsson (48:26). Stoðsendingar: Hank Nagel, Arnar Kristjánsson.
  • 0-7 - Orri Blöndal (54:55). Stoðsendingar: Jóhann Már Leifsson, Andri Már Mikaelsso.
  • 0-8 - Hank Nagel (58:58). Stoðsendingar: Uni Blöndal, Orri Blöndal.

Helstu tölur:

Fjölnir

Varin skot: Þórir Aspar 37 af 45 (82,2%).
Refsingar: 8 mínútur.

SA

Mörk/stoðsendingar: Hafþór Andri Sigrúnarson 2/2, Andri Már Mikaelsson 1/3, Jóhann Már Leifsson 1/3, Hank Nagel 1/2, Orri Blöndal 1/2, Matthías Stefansson 1/0, Ormur Jónsson 1/0, Arnar Kristjánsson 0/1, Bjarmi Kristjánsson 0/1, Heiðar Gauti Jóhannesson 0/1. 
Varin skot: Róbert Steingrímsson 12 af 12 (100%).
Refsingar: 10 mínútur.

Leikskýrslan

Staðan í deildinni

Fram undan er spennandi lokakafli deildarkeppninnar þar sem SA og SR berjast um deildarmeistaratitilinn og heimaleiksréttinn í úrslitarimmunni.SR er með 29 stig og á þrjá leiki eftir, en SA með fjórum stigum minna og á leik til góða á SR. Þessi lið eiga eftir að mætast tvisvar í deildarkeppninni.

Brodd-Helga þáttur

Jóhann Árelíuz skrifar
15. febrúar 2026 | kl. 06:00

Brynhildur fer aftur á bráðamóttökuna

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
13. febrúar 2026 | kl. 09:30

Brynhildur fer á bráðamóttökuna

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
12. febrúar 2026 | kl. 08:30

Vistkerfisþjónusta

Sigurður Arnarson skrifar
11. febrúar 2026 | kl. 16:00

Ef ekki núna, hvenær?

Guðrún Arngrímsdóttir skrifar
10. febrúar 2026 | kl. 06:00

Fjalla-Eyvindur og Halla

Jóhann Árelíuz skrifar
08. febrúar 2026 | kl. 06:00