Fara í efni
Pistlar

Fullkomna KA-konur fernuna í kvöld?

Meistarar meistaranna, bikarmeistarar og deildarmeistarar. Verða KA-konur Íslandsmeistarar einnig í kvöld? Mynd: Skapti Hallgrímsson.

Árangur kvennaliðs KA í blaki hefur verið hreint magnaður á undanförnum árum, sigrarnir og titlarnir nánast óteljandi og í kvöld getur einn bikar í viðbót bæst í safnið. 

Kvennalið KA hefur nú þegar unnið alla þrjá titlana sem í boði hafa verið á tímabilinu. KA-konur hófu tímabilið á að vinna þá ríkjandi bikarmeistara Aftureldingar í leiknum um meistara meistaranna síðastliðið haust. Núna í vetur unnu þær svo bikarkeppnina, Kjörísbikarinn, og urðu deildarmeistarar Unbroken-deildarinnar. Þrír bikarar komnir í hús, einn eftir, og þar stendur KA-liðið vel að vígi eftir tvo sigra og leiðir einvígið við Völsung 2-0. 

Þriðji leikur KA og Völsungs í úrslitaeinvíginu fer semsagt fram í KA-heimilinu í kvöld. Með sigri tryggir KA sér fjórða bikarinn á leiktíðinni.

  • Íslandsmót kvenna í blaki, Unbroken-deildin, úrslitaeinvígi, leikur 3
    KA-heimilið kl. 19 (athugið breyttan leiktíma)
    KA - Völsungur

Örlítið brot frá unglingsárum

Kristín Aðalsteinsdóttir skrifar
09. maí 2025 | kl. 06:00

Barkarbjöllur – ógn við íslenska skóga

Sigurður Arnarson skrifar
07. maí 2025 | kl. 08:45

Serie A

Sigmundur Ernir Rúnarsson skrifar
05. maí 2025 | kl. 11:30

Uppá eldhússkápnum

Jóhann Árelíuz skrifar
04. maí 2025 | kl. 10:00

Heilbrigt vantraust

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
04. maí 2025 | kl. 06:00

Njósnir í skólastofunni

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
03. maí 2025 | kl. 07:45