Fara í efni
Pistlar

Drift og Golfklúbbur Akureyrar í samstarf

Kolfinna María Níelsdóttir og Sesselja I. Barðdal frá Drift EA og Steindór Kr. Ragnarsson og Jón Heiðar Sigurðsson frá GA.

Drift EA og Golfklúbbur Akureyrar (GA) hafa tekið höndum saman í nýju samstarfi sem miðar að því að efla upplifun fyrirtækja og teyma sem sækja Norðurland heim. Markmiðið er að sameina vinnu, tengslamyndun og afþreyingu í einni heildstæðri upplifun.

Samstarfið byggir á þeirri hugmynd að skapandi samtöl og sterk tengsl myndist oft utan hefðbundinna fundarherbergja. Með því að samþætta golf við vinnuferðir er mögulegt að skapa aðstæður þar sem þátttakendur geta bæði unnið að verkefnum sínum og notið afþreyingar í náttúru Norðurlands.

Að sögn Sesselju Ingibjargar Barðdal, framkvæmdastýru Driftar EA, hefur lengi verið unnið að því að þróa umhverfi sem hvetur til nýrra hugmynda og dýpri tengsla. Hún segir golfið gegna þar mikilvægu hlutverki, þar sem það bjóði upp á afslappaða umgjörð sem auðveldi samskipti og hugmyndavinnu. Hún bendir jafnframt á að aðstæður á Jaðarsvelli skapi einstaka upplifun fyrir þátttakendur.

Hjá GA er samstarfinu tekið fagnandi. Framkvæmdastjóri klúbbsins, Steindór Kr. Ragnarsson, segir golf eiga sér langa hefð á svæðinu og að klúbburinn eigi sér yfir 90 ára sögu. Hann bendir á að aðstaða klúbbsins hafi þróast mikið á undanförnum árum og standist nú samanburð við það besta sem gerist á landinu.

Að hans sögn er golfvöllurinn ekki aðeins íþróttasvæði heldur einnig vettvangur þar sem fólk hittist, tengist og nýtur samveru. Með nýrri inniaðstöðu og golfbúð hafi tekist að styrkja reksturinn allt árið um kring.

Samstarfið er hluti af markvissri uppbyggingu Driftar EA á samstarfsneti á Norðurlandi. Með því vilja Drift EA og GA skapa vettvang þar sem fyrirtæki og teymi geta sótt innblástur, styrkt tengsl og fundið ný tækifæri til vaxtar; jafnvel með því einu að stíga út af fundi og inn á golfvöll.

Hús dagsins: Gránufélagsgata 18

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
26. apríl 2026 | kl. 14:00

Súrmatur á Hofi

Jóhann Árelíuz skrifar
26. apríl 2026 | kl. 11:30

Um trjárækt árið 1916

Sigurður Arnarson skrifar
22. apríl 2026 | kl. 12:45

„Næring“ – meira en það sem er á disknum

Hrafnhildur Reykjalín skrifar
21. apríl 2026 | kl. 08:00

Laxness í norska Amaróhúsinu

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
17. apríl 2026 | kl. 12:00

Ólíkt undirlag, sama útkoma – sigur Þórs

Orri Páll Ormarsson skrifar
17. apríl 2026 | kl. 09:30